Lífið

Bara með bótox og biður um að vera látin í friði

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Selena Gomez á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Selena Gomez á kvikmyndahátíðinni í Cannes. EPA-EFE/ANDRE PAIN

Bandaríska leik- og söngkonan Selena Gomez hefur kveðið niður orðróm þess efnis að hún hafi undirgengist hnífinn og farið í viðamiklar fegrunaraðgerðir. Selena tjáði sig við myndband á Tik Tok þar sem umfjöllunarefnið var útlit hennar undanfarin ár.

Samfélagsmiðlastjarnan Marissa Barrionuevo var þar á ferð en hún hafði verið beðin um að fara yfir það hvaða fegrunaraðgerðir hún teldi Selenu hafa undirgengist. Ástæðan er sú að Marissa þessi er fegrunarlæknir.

Marissa neitaði þó að verða við óskum fylgjenda sinna. Útskýrði hún í myndbandi sínu að það væri vegna þess að Selena væri með sjálfsofnæmissjúkdóminn lúpus sem hefði áhrif á útlit hennar, það væri hreint ekki vegna fegrunaraðgerða. Marissa eyddi þó myndbandinu eftir að Selena skrifaði þar athugasemd.

„Í fullri hreinskilni, þá hata ég þetta,“ skrifaði Selena við myndbandið. „Ég var á sterum vegna bólgu, ég er með bótox. Það er allt og sumt. Látið mig í friði.“

@marissathepa Replying to @Selena Gomez ♬ original sound - Marissa the PA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.