Innlent

Hjól­hýsi sem búið var í að engu orðið

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Allt tiltækt lið var kallað út.
Allt tiltækt lið var kallað út. Vísir/Sigurjón

Allar tiltækar slökkviliðsstöðvar voru kallaðar út vegna elds í Mosfellsbæ. Eldur kviknaði í hjólhýsi og læsti sér í nærliggjandi byggingu. Ekki er vitað hversu mikið tjón varð af en búið er að slökkva eldinn að mestu leyti.

Þetta staðfestir slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu í samtali við fréttastofu. Varðstjóri á vettvangi tjáði fréttastofu að ljóst væri að búið hefði verið í hjólhýsinu. Það er að engu orðið.

Hluta byggingarinnar þarf að rífa til að hægt sé að komast bakvið klæðningu að sögn slökkviliðsins.

Myndir af vettvangi má sjá að neðan. Fréttastofa tekur við ábendingum sem fyrr á netfangið ritstjorn@visir.is.

Vísir/Sigurjón
Vísir/Sigurjón
Vísir/Sigurjón



Fleiri fréttir

Sjá meira


×