Enski boltinn

Fabio skoraði þegar Liverpool vann Arsenal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fabio Carvalho og Mo Salah fagna marki í gær en þeir skoruðu mörk Liverpool liðsins.
Fabio Carvalho og Mo Salah fagna marki í gær en þeir skoruðu mörk Liverpool liðsins. Getty/John Powell/

Liverpool tapaði kannski feluleiknum á móti Stefáni Teiti Þórðarsyni og félögum í Prestum en þeir byrja vel undir stjórn Arene Slot fyrir opnum dyrum.

Liverpool vann Real Betis í fyrsta leik sínum í æfingaferðinni til Bandaríkjanna og fylgdi því eftir með sigri á Arsenal í nótt.

Liverpool vann leikinn 2-1 eftir að hafa komist í 2-0. Mohamed Salah og Fabio Carvalho skoruðu mörkin en Kai Haverts minnkaði muninn. Harvey Elliott lagði upp bæði mörk Liverpool í leiknum.

Næsti leikur Liverpool er síðan á móti Manchester United á laugardaginn.

Það eru mörg augu á liði Liverpool nú þegar nýr knattspyrnustjóri er að taka við.

Fabio Carvalho er þannig að fá tækifærið hjá Slot og nýtir það vel. Markið hans eykur líkurnar á því að hann haldi sæti sínu fyrir United leikinn. Hér fyrir neðan sést Carvalho skora eftir frábæra sendingu frá Harvey Elliott.

Manchester United vann 3-2 sigur á Real Betis í nótt þar sem liðið lenti 1-0 undir en komst 3-1 yfir fyrir hálfleik. Marcus Rashford (víti), Amad Diallo og Casemiro skoruðu mörk United manna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×