Tónlist

Börn og sjálf­stæðis­menn vel­komin í fylgd með for­ráða­mönnum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Frá tónleikum á litla sviðinu í anddyrinu á Norðanpaunki 2019. Sviðsdýfur og mannhafssiglingar hafa löngum tengst harðkjarnapönkinu sterkum böndum.
Frá tónleikum á litla sviðinu í anddyrinu á Norðanpaunki 2019. Sviðsdýfur og mannhafssiglingar hafa löngum tengst harðkjarnapönkinu sterkum böndum. norðanpaunk

Ættarmót pönkara, Norðanpaunk, heldur upp á tíu ára afmæli sitt um verslunarmannahelgina, að vanda í félagsheimilinu á Laugarbakka í Húnaþingi vestra.

Mótið sem er haldið af „Félagi áhugafólks um íslenska jaðartónlist“ skapar rými fyrir undarlega og erfiða tónlist og aðdáendur hennar um verslunarmannahelgina.

Alls kyns númer úr íslensku jaðar- og pönksenunni koma fram, Gróa, Börn, Retrön, Drýsildjöfull, Deathmetal Supersquad, Marghöfða dýrið, Barnaveiki og þar fram eftir götunum. Einnig koma fram nokkrar erlendar sveitir, TÆL frá Noregi, Laxity frá Póllandi, Mass frá Bretlandi og Firtan og Unru frá Þýskalandi. 45 sveitir á þremur dögum, deilt á milli tveggja sviða. Stíf dagskrá.

Í tilfellum tölvuleikjarokksveitarinnar Retrön og pönkbandsins Deathmetal Supersquad er um endurkomur að ræða, en sveitirnar voru upp á sitt virkasta fyrir um 15 árum síðan.

Eins og á öðrum ættarmótum eru engir miðar seldir við hurð og ekkert áfengi selt, segir í tilkynningu frá Norðanpaunki. Börn og sjálfstæðismenn séu velkomin í fylgd með forráðamönnum og með heyrnarhlífar.

Skráningu fyrir ættarmótið og allar aðrar upplýsingar megi finna á heimasíðu Norðanpaunks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×