Innlent

Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Ís­lands

Kristján Már Unnarsson skrifar
Flugvél Eriks Nelsons lenti á Mikleyjarál í Hornafirði þann 2. ágúst 1924 klukkan 18:37 eftir átta stunda flug frá Skotlandi. Þetta var í fyrsta sinn sem flugvél var flogið yfir hafið til Íslands.
Flugvél Eriks Nelsons lenti á Mikleyjarál í Hornafirði þann 2. ágúst 1924 klukkan 18:37 eftir átta stunda flug frá Skotlandi. Þetta var í fyrsta sinn sem flugvél var flogið yfir hafið til Íslands. Höfundur ókunnur/Flugsafn Íslands, Íslenska flugsögufélagið

Eitthundrað ár eru í dag, 2. ágúst, frá því flugvél var í fyrsta sinn flogið yfir úthafið til Íslands. Flugmaðurinn sem það afrekaði var Bandaríkjamaður af sænskum ættum, Erik H. Nelson, en flugið var hluti af hnattflugi bandaríska flughersins.

Flugvélin New Orleans lent á Mikleyjarál.Höfundur ókunnur/Hornafjarðarflugvöllur

Erik Nelson ásamt vélamanninum John Harding flaug frá Kirkwall á Orkneyjum og lenti sjóflugvél sinni „New Orleans" við Höfn í Hornafirði klukkan 18:37 eftir um átta klukkustunda flug. Daginn eftir tókst annari flugvél úr leiðangrinum, sem bar nafnið „Chicago", einnig að ná til Hornafjarðar. Þann 5. ágúst var þeim báðum flogið til Reykjavíkur og tók flugið frá Höfn um fimm klukkustundir.

Þetta telst einn merkasti atburður íslenskrar flugsögu. Fimm árum áður hafði flugvél í fyrsta sinn verið flogið á Íslandi, þann 3. september 1919, þegar flugvél af gerðinni Avro 504K hóf sig til flugs úr Vatnsmýrinni í Reykjavík. Sú flugvél hafði verið flutt til landsins með skipi á vegum Flugfélags Íslands, þess fyrsta sem bar það nafn, en var árið eftir send úr landi þegar ekki fékkst stuðningur til frekari tilrauna með flugstarfsemi.

Mikleyjarhúsin. Þar höfðu flugmennirnir aðsetur meðan þeir dvöldu á Hornafirði. Á þökunum voru þeir boðnir velkomnir.Hornafjarðarflugvöllur

Flugsafn Íslands á Akureyri minnist hnattflugsins og fyrsta flugsins til Íslands með ýmsum hætti. Þannig hefur Flugsafnið fengið að láni frá Þjóðminjasafni Íslands loftskrúfu flugvélar Nelsons og verður hún til sýnis á safninu fram á næsta vor. Þá er sérstakur viðburður áformaður á safninu í næstu viku þar sem tímamótanna verður minnst.

Loftskrúfan úr flugvél Nelsons er núna til sýnis á Flugsafninu á Akureyrarflugvelli. Skrúfan er varðveitt á Þjóðminjasafni ÍslandsFlugsafn Íslands, Akureyri

Samantekt um hnattflugið sem Þorkell Ágúst Jóhannsson, formaður Arnarins, Hollvinafélags Flugsafns Íslands, ritaði má lesa hér á heimasíðu Flugsafnsins.

Önnur flugvélin af tveimur að koma inn til lendingar á Reykjavíkurhöfn þann 5. ágúst árið 1924. Þetta var fyrsta millilandaflugið til Íslands en vélarnar lentu fyrst á Hornafirði.Magnús Ólafsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Í grein Þorkels kemur fram að í Reykjavík hafi múgur og margmenni beðið komu flugvélanna með borgarstjórann Knud Zimsen í broddi fylkingar.

„Var talað um að mannfjöldinn jafnaðist á við konungskomu enda um stórviðburð að ræða."

Sjóflugvélin New Orleans dregin upp á steinbryggjuna í Reykjavíkurhöfn þann 5. ágúst 1924. Flugmaður hennar var Erik H. Nelson og honum til aðstoðar John Harding.Jón Jónsson frá Þjórsárholti/Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Ljósmyndasafn Reykjavíkur minntist aldarafmælis þessara tímamóta í samgöngusögu Íslands fyrr á árinu með fyrirlestri Leifs Reynissonar sagnfræðings. Leifur sagði þar að þessum viðburði hefði lítið verið hampað í sögubókum en full ástæða væri til að draga þetta fram nú þegar hundrað ár væru liðin.

„Árið 1924 var þetta stórviðburður. Því að það var flogið um haf langa vegalengd. Og við vorum hluti af heimsviðburði,” sagði Leifur í frétt Stöðvar 2, sem sjá má hér:


Tengdar fréttir

Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar

Ljósmyndasafn Reykjavíkur minntist þess í dag að eitthundrað ár verða liðin í sumar frá því flugvélar flugu í fyrsta sinn yfir hafið til Íslands. Þessa dagana standa alþjóðasamtök flugfélaga fyrir ráðstefnu í Reykjavík um hvernig bæta megi þjónustu á flugvöllum á heimsvísu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×