Sport

Carini vill biðja Khelif af­sökunar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Angela Carini stígur út úr hringnum eftir bardagann gegn Imane Khelif.
Angela Carini stígur út úr hringnum eftir bardagann gegn Imane Khelif. getty/Richard Pelham

Ítalska hnefaleikakonan Angela Carini, sem bað um að bardagi sinn á Ólympíuleikunum gegn hinni alsírsku Imane Khelif yrði stöðvaður eftir aðeins 46 sekúndur, vill nú biðja hana afsökunar á framferði sínu.

Eftir að hafa fengið tvö högg frá Khelif bað Carini um að bardaginn yrði stöðvaður. Hún heyrðist segja „þetta er ekki rétt­látt“ áður en Khelif var úrskurðuð sigurvegari bardagans og í kjöl­farið brotnaði sú ítalska niður í hringnum.

Þátttaka Khelifs á Ólympíuleikunum er ekki óumdeild því henni var meinuð þátttaka á heimsmeistaramótinu í fyrra þar sem hún stóðst ekki kynjapróf Al­þjóðahnefa­leika­sam­bandsins (IBA) sem skipuleggur HM. IBA kemur hins vegar ekki lengur að skipulagningu hnefaleikakeppninnar á Ólympíuleikunum þar sem Khelif má keppa. Alþjóðaólympíunefndin hefur gagnrýnt útilokun Khelifs frá HM harðlega.

Í viðtali eftir bardagann sagðist Carini sagðist aldrei hafa verið slegin jafn fast og af Khelif.

„Ég er niðurbrotin,“ sagði Carini eftir bardagann en The Guardian greinir frá. „Ég steig inn í hringinn til þess að heiðra minningu föður míns. Ég hef oft fengið að heyra að ég sé stríðskona en ég ákvað að hætta keppni heilsu minnar vegna. Ég hef aldrei verið slegin svona áður. Ég steig inn í hringinn til þess að berjast. Ég gafst ekki upp en eitt höggið særði mig of mikið þannig að ég ákvað að hætta. Ég fer héðan og get borið höfuðið hátt.“

Carini sér greinilega eftir því hvernig hún lét eftir bardagann í gær, miðað við viðtal við hana í Gazzetta dello Sport. Þar sagðist hún vilja biðja Khelif afsökunar á að hafa ekki tekið í höndina á henni eftir bardagann.

„Allt þetta mál hryggir mig. Mér þykir þetta líka leitt fyrir andstæðing minn. Ef IOC segir að hún megi berjast ber ég virðingu fyrir því.“

„Þetta var ekki eitthvað sem ég ætlaði að gera. Raunar vil ég biðja hana og alla afsökunar. Ég var reið því Ólympíuleikarnir mínir höfðu fuðrað upp.“

Carini sagði að hún myndi heilsa Khelif ef þær mættust aftur í hringnum.

Í átta manna úrslitum í veltivigt á Ólympíuleikunum mætir Khelif Önnu Luca Hámori frá Ungverjalandi. Bardagi þeirra fer fram á morgun.


Tengdar fréttir

Hin sem féll á kynjaprófinu á HM vann einnig

Hin taívanska Lin Yu-ting, sem var vísað úr keppni á HM í hnefaleikum í fyrra þar sem hún stóðst ekki kynjapróf, vann fyrsta bardaga sinn á Ólympíuleikunum í París.

Utan vallar: Þegar mektarfólk lætur sig kvennaíþróttir varða

Stórfurðulegt mál frá Ólympíuleikunum í París er skyndilega eitt það umtalaðasta er varðar íþróttir kvenna í áraraðir. Sjaldan hafa samfélagsmiðlar blásið eins mikið upp í kringum einvígi á íþróttavelli sem stóð í 46 sekúndur. Og umræðan að stóru leyti byggð á ranghugmyndum og ósannindum.

Ólympíuefndin skýtur föstum skotum á hnefaleikasambandið

Al­þjóðaólympíu­nefndin (IOC) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem nefndir harmar þá umræðu og svívirðingar sem hafa flogið eftir að hin alsírska Ima­ne Khelif vann einvígi í hnefaleikum á Ólympíuleikum í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×