Lífið

Stemning og gott veður á Akur­eyri: „Sjaldan séð jafn mikinn fjölda í bænum“

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Mikill fjöldi fólks er á Einni með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina.
Mikill fjöldi fólks er á Einni með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina. Hilmar Friðjónsson

Að frátalinni stunguárás í fyrrinótt hefur bæjarhátíðin Ein með öllu á Akureyri gengið eins og í sögu að sögn skipuleggjanda. Veðrið verið gott, og gleðin við völd. Davíð Rúnar Gunnarsson, skipuleggjandi bæjarhátíðarinnar, var hinn kátasti þegar fréttastofa náði af honum tali fyrr í dag. „Þetta er búið að ganga alveg eins og draumur hérna fyrir norðan hjá okkur. Fullt af fólki og hefur farið mjög vel fram allt saman,“ segir Davíð.

Í gær var heilmikil dagskrá á Ráðhústorginu, sem ekki var í fyrra og hittiðfyrra. „Við ákváðum að breyta aðeins til og byrja með það aftur og það var sett upp lítið svið og það var mörg þúsund manns. Ég hef sjaldan séð jafn mikinn fjölda hérna í bænum,“ segir Davíð.

Dagskráin hélt áfram langt fram eftir kvöldi í gær og ekki minna um að vera í dag. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá svipmyndir frá Akureyri um helgina.

Klippa: Stemning á Einni með öllu

„Aðal dæmið okkar í dag er kannski Kjarnaskógur, það er skógardagurinn. Þarna er rosalega margt í gangi fyrir alla fjölskylduna. Þetta gæti ekki orðið meira fjölskyldu eins og Kjarnaskógsdagurinn er,“ segir Davíð

Þá nær hátíðin hápunkti á Sparitónleikum Einnar með öllu á Leikhúsflötinni í kvöld þar sem fram koma Herra Hnetusmjör, Prettyboitjokko, Kristmundur Axel, Birna Karen, Stjórnin, Páll Óskar, Saint Pete, Drottningar og hljómsveitin 7.9.13.

„Miðað við stöðuna hérna núna þá getur veðrið ekkert versnað. Það getur bara ekki gert það, það er bannað,“ segir Davíð, sem er bjartsýnn á áframhaldandi gleði og glaum á Akureyri. „Sólin á heima á Akureyri.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×