Innlent

Séra Frank M. Hall­dórs­son sóknar­prestur látinn

Kjartan Kjartansson skrifar
Séra Frank M. Halldórsson.
Séra Frank M. Halldórsson. Aðsend

Séra Frank Martin Halldórsson fyrrum sóknarprestur í Nessókn, lést á bráðadeild Landsspítalans í Fossvogi 31. júlí, níræður að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá systkinum hans.

Frank fæddist í Reykjavík 23. febrúar 1934. Foreldrar hans voru Rose Evelyn Halldórsson og Nikulás Marel Halldórsson. Systkini hans eru Betsy R. Halldórsson og Georg S. Halldórsson.

Frank varð stúdent frá MR árið 1954 og las guðfræði við Háskóla Íslands. Á námsárunum nam hann guðfræði í Sviss, við The Graduate School of Ecumenical Studies í Chateau de Bossey og við Háskólann í Heidelberg í Þýskalandi.

Hann lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands í janúar 1959 og prófi í uppeldis- og kennslufræðum frá Háskóla Íslands árið 1971.

Kennsluferil sinn hóf hann sem stundakennari við Mýrarhúsaskóla en lengst kenndi hann við Hagaskóla frá 1959 til 1987.

Frank var skipaður sóknarprestur í Nesprestakalli frá 1. janúar 1964 og gegndi því starfi til 2004. Í Neskirkju var mjög öflugt safnaðarstarf og voru afar vinsælar sumarferðir safnaðarfólks bæði innan lands og utan.

Framhaldsnám í sálgæslu nam hann við The University of Texas í Houston í Bandaríkjunum frá 1987 til 1989 og starfaði jafnframt námi sem sjúkrahúsprestur við M.D.Anderson Hospital í Houston.

Hann hafði mikinn áhuga á að kynna söguslóðir Biblíunnar og í sextán ár ráku þau Jóna Hansen ferðaskrifstofuna Víðsýn og með þeim fór fjöldi Íslendinga til Biblíulanda.

Frank var formaður Prestafélags Suðurlands í tíu ár og sat í skipulags- og starfsháttanefnd Reykjavíkurprófastsdæmis í þrjú ár.

Útför hans verður gerð frá Neskirkju, mánudaginn 26. ágúst klukkan 15:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×