Stór bankafjárfestir kallar eftir „frekari hagræðingu“ á fjármálamarkaði
![Ummæli forstjóra Stoða, sem stór og áhrifamikill hluthafi í tveimur bönkum, um mikilvægi þessa að skoða áfram hagræðingartækifæri og ná fram meiri stærðarhagkvæmni beinir óhjákvæmilega kastljósinu að mögulegum samruna Kviku og Arion banka.](https://www.visir.is/i/AE2978DC71D7853D4EC31F3D9694C0546896DFCD56D78FB9415D2906E329E1D2_713x0.jpg)
Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Arion og Kviku banka segir ljóst að sífellt strangara regluverk ásamt aukinni erlendri samkeppni kalli á meiri stærðarhagkvæmni og því sé eðlilegt að skoða hvort ekki séu tækifæri til „frekari hagræðingar“ á íslenskum fjármálamarkaði, en Landsbankinn er núna að klára kaup á TM af Kviku. Forstjóri Stoða, leiðandi hluthafi í umsvifamiklum ferðaþjónustufyrirtækjum, segir að ef Ísland sé orðið of dýr áfangastaður muni það „óumflýjanlega“ leiðréttast þannig að annaðhvort lækki verð á þjónustu eða gengi krónunnar gefi einfaldlega eftir.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/E07E7D30A0C5C04EEAB3D591BFAB5EEFA61FE57B3642FF977D5757ED844E80AE_308x200.jpg)
Varar Seðlabankann við því að endurtaka fyrri mistök með hávaxtastefnu sinni
Forstjóri eins umsvifamesta fjárfestingafélags landsins fer hörðum orðum um vaxtastefnu Seðlabankans, sem er „alltof upptekinn“ við að rýna í baksýnisspegilinn nú þegar verðbólgan sé ekki lengur keyrð áfram af þenslu, og varar við því að mistökin í aðdraganda fjármálahrunsins verði endurtekin þegar hátt vaxtastig viðhélt óraunhæfu gengi krónunnar samtímis því að heimili og fyrirtæki neyddust til að fjármagna sig í verðtryggðum krónum eða erlendum myntum. Hann telur að það „styttist í viðspyrnu“ á hlutabréfmarkaði eftir að hafa verið í skötulíki um langt skeið, meðal annars vegna skorts á fjölda virkra þátttakenda og einsleitni fjárfesta, en segir lífeyrissjóði sýna hugmyndum til að auka skilvirkni markaðarins lítinn áhuga.
![](https://www.visir.is/i/805911A9E1500734ADC03FB6F95F2B66E10229850B3FD26F249F4CFDBA840543_308x200.jpg)
Stór bankafjárfestir segir óhóflegar eiginfjárkröfur kosta samfélagið tugi milljarða
Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur.