Upp­gjörið: Víkingur - Vestri 1-1 | Arnar sá rautt í jafn­tefli gegn Vestra

Ólafur Þór Jónsson skrifar
454668655_26802713005980664_9064130300074584691_n

Víkingur tók á móti Vestra í 18. umferð Bestu deildarinnar í dag. Liðin á sitthvorum enda deildarinnar, Víkingur á toppnum en Vestri í 11. sæti og í bullandi fallbaráttu. Vestri þurfti á sigri að halda til að komast uppúr fallsæti en Víkingur sem eru einnig á fullu í Evrópukeppni þessa dagana þurftu á þremur stigum að halda til að halda í toppsætið.

Það var ekki að sjá að gestirnir væru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni í upphafi því eftir einungis þriggja mínútna leik komst Víkingur yfir. Markið skoraði Valdimar Þór Ingimundarson eftir stoðsendingu Erlings Agnarssonar. Markið var ljómandi fínt en varnarleikur Vestra varð eftir í klefanum fyrir leik því hann var hreinlega ekki til staðar.

Eftir markið datt allur hraði úr leiknum. Víkingar virtust sáttir við stöðuna og Vestri náði ekki að nýta sér það. Vestri skapaði sér þrjú góð færi en þeim vantaði einhvern til að reka smiðshöggið og setja boltann í netið. Staðan var 1-0 í hálfleik.

Leikurinn var heldur hægur og stjórnuðu Víkingar hraðanum. Þrátt fyrir það fengu bæði lið þokkaleg færi. Að lokum fór svo að Vestri náði að koma inn jöfnunarmarki á 83. mínútu en það var Gunnar Jónas Hauksson sem skoraði með skoti fyrir utan teig. Eftir það varð allt brjálað sem verður tíundað nánar hér að neðan.

Jafntefli var niðurstaðan og skildi liðin með sitt mark hvor. Jafnteflið var sanngjarnt en eftir fyrstu 15-20 mínúturnar voru Vestra menn ákveðnari og orkumeiri í sínum aðgerðum. Víkingar stýrðu leiknum hefðu með því að gefa aðeins meira í leikinn getað náð í sigur.

Atvik leiksins

Jöfnunarmarkið kom eftir 83. mínútur og það verður allt vitlaust. Brotið er á Sveini Gísla framarlega á vellinum og hann liggur sárþjáður eftir. Vestri fer fram völlinn og skorar gott mark. Arnar Gunnlaugsson gjörsamlega missir það eftir þetta og lætur óánægju sína dynja á aðstoðardómara leiksins. Arnar fær rautt spjald og leikurinn fjarar út eftir það. Arnar er í annað sinn að fá rautt spjald á tímabilinu og er því á leið í 2. leikja bann.

Stjörnur og skúrkar

Erlingur Agnarsson var bestur í liði Víkinga. Hann var gríðarlega öflugur á hægri kantinum, vann vel og var alltaf ógn af honum. Guðmundur Arnar sem lék í vinstri bakvarðarstöðu Vestra í dag verður væntanlega með hann í martröðum sínum næstu daga.

Einnig ber að nefna frammistöðu Sveins Gísla Þorkelssonar sem var virkilega öflugur sem vinstri miðvörður/bakvörður í þriggja manna varnarlínu. Gaf engin færi á sér varnarlega og var sífellt ógnandi þegar hann fór fram völlinn. Greinilega mjög fjölhæfur leikmaður sem er að nýtast Víkingum rækilega þessa dagana.

Hjá Vestra ógnaði Silas Songani ítrekað með hraða sínum og krafti. Maður leiksins í dag var Gunnar Jónas Hauksson sem var sívinnandi á miðjunni í dag og skorar svo jöfnunarmarkið. Hann steig varla feilspor og ljóst að hann er að spila með hjartanu í þessu liði Vestra.

Vladimir Tufegdzic var í frammlínu Vestra í dag og hefur oft átt betri daga. Hann lét Viktor Örlyg fara ítrekað illa með sig og var aldrei nálægt boltanum í hættulegum fyrirgjöfum liðsfélaga sinna.

Dómarinn

Vilhjálmur Alvar stýrði leiknum ágætlega í dag. Leyfði leiknum að fljóta vel og var ekkert að rífa upp spjöld að óþörfu. Aftur á móti gekk hann of langt í því í seinni hálfleik og missti stjórnina þá. Hann hefði þurft að halda línunni aðeins betur þar sem menn komust upp með ansi óþarfa brot sem hleypti leiknum upp. Atvikið í aðdraganda marksins er síðan toppurinn þar sem leikurinn fer uppí háaloft.

Stemningin og umgjörð

Það var fínasta stemmning í Víkinni í dag. Ágæt mæting miðað við leiktíma og aðstæður að vanda frábærar. Víkingur eru með frábæra umgjörð líkt og áður og virkilega fín leikdagsupplifun í dag.

Viðtöl

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira