Arnar brjálaður út í dómarana: „Þolinmæði mín er á þrotum“ Ólafur Þór Jónsson skrifar 11. ágúst 2024 16:59 Það sauð á Arnari Gunnlaugssyni eftir leikinn gegn Vestra. vísir/diego Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings var vægast sagt ósáttur eftir jafntefli sinna manna gegn Vestra í 18. umferð Bestu deildarinnar í dag.
Vestri skoraði jöfnunarmark á 83. mínútu leiksins en allt ætlaði um koll að keyra því í aðdraganda marksins var brotið illa á Sveini Gísla varnarmanni Víkings. Arnar fékk rautt spjald í beinu framhaldi eftir rækileg mótmæli. „Ég þoli ekki svona ósanngirni í fótbolta. Þetta var hrikalega léleg dómgæsla hjá þeim félögum, aðstoðardómarinn er með sama sjónarhorn og ég. Vestramaðurinn gjörsamlega straujar Svein Gísla að það hálfa væri nóg,“ sagði Arnar um atvikið fljótlega eftir leik og bætti við: „Það var bara toppurinn á ísjakanum, atvikin í seinni hálfleiknum eru svakaleg. Eiður Aron átti að vera rekinn útaf þegar Valdimar er sloppinn innfyrir. Menn eru bara blindir.“ Klippa: Eldræða Arnars um dómara Arnar var greinilega ósáttur við dómgæsluna í dag og sagði þó að þetta væri uppsafnaður pirringur. „Plís ekki fara að láta eitthvað Twitterlið fara að væla að við eigum að sýna fordæmi gagnvart dómurum í meistaraflokki karla. Það á að sýna fordæmi gagnvart dómurum í 6.-8. flokki og ekki rífa kjaft þar en þetta er elítu fótbolti. Þannig menn verða gjöra svo vel að standa sig og þola gagnrýni frá þjálfurum í efstu deild í stað þess að vera eins og litlir menn uppum hvippinn og hvappinn,“ „Þetta er að kosta okkur dýrt, því miður. Strákarnir lögðu mikið í þennan leik. Mér finnst þetta ósanngjarnt og ég segi það ekki oft.“ Dómarar sitji eftir Gunnar Jónas Hauksson skoraði jöfnunarmark Vestra á 83. mínútu og var fögnuður Vestra ósvikin meðan mótmælin dundu yfir dómarateymið. Arnar viðurkenndi fúslega að varnarleikurinn hafi ekki verið góður í markinu en sagði svo: „Auðvitað eigum við að gera betur, ég er ekki að tala um það. Við erum með ansi laskað lið þarna í dag og við eigum að gera betur. Það afsakar samt ekki það sem er að gerast í seinni hálfleik og þetta er búið að vera dapurt síðan í Fram leiknum. Ég verð fyrsti maðurinn til að segja það, já við fengum gefins mark á móti Fram. En við vinnum ekki leikinn útaf því marki.“ „Svo er eitthvað rangstöðumark á móti Blikum en við vinnum þá samt tvö núll. Svo kemur einhver þáttur og síðan þá höfum við ekki fengið rassgat í allt sumar. Víti sem við áttum að fá, Vals-fíaskóið og þolinmæði mín er á þrotum. Það getur verið að ég fái 2-3 leikja bann en mér er bara alveg sama. Dómararnir þurfa bara að taka þessari gagnrýni. Deildin er að verða betri og sterkari en þeir eru bara að sitja eftir, það er ekkert flóknara en það.“ Plís fáum VAR á Íslandi Umræðan í sumar hefur oft verið á þá veg að Víkingar séu grófir og fái mikið frá dómurunum. Finnst Arnari dómararnir vera að leiðrétta það í síðustu leikjum? „Það er bara skortur á hreðjum hjá þeim (dómurunum). Þeir eru svo litlir í sér að þeir dæma ekki. Það eru svona fimm víti sem við höfum átt að fá svona fljótt talið. Það er bara eitthvað sem vantar. Ég ætla mér að verða Íslandsmeistari án þeirra hjálpar, það er bara staðreynd. Það var einhver góður maður sem sagði að maður ætti að búa til lið sem vinnur titla án hjálpar dómara. Þeir voru næstum búnir að eyðileggja titilinn 2021 fyrir mér með einhverjum dómi á KR vellinum sem engin sá. Sem betur fer varði Ingvar það víti,“ sagði Arnar og breytti svo um tón. „Plís, fáum VAR hérna á Íslandi - við erum bara ekki að höndla þetta. Því miður. Þetta er bara slök dómgæsla, ekki bara hjá Víkingum. Það eru svona 200.000 atvik hjá öllum liðum í deildinni. Takið þessari gagnrýni og gerið f*** betur.“ Laskað lið Jafntefli var niðurstaðan og var nokkuð sanngjarnt þar sem liðin fengu sín færi þrátt fyrir að Víkingur hafi komist snemma yfir. Arnar tók undir að liðið hefði kannski verið of rólegt eftir markði. „Við erum mjög laskaðir. Við vorum að halda hraðanum niðri til að spara okkur hlaupin og það hjálpaði mikið til að fá þetta mark í byrjun. Svo koma einhver atvik og manni líður ekki vel í stöðunni 1-0. Mögulega gátum við skorað einhver mörk í viðbót en þeir fá einhver hálffæri líka. Ég er fúll núna og finnst lífið óréttlátt en ég verð sáttur við þetta stig í kvöld því menn sáu bara hvaða lið við vorum með í dag, strákarnir gerðu ógeðslega vel í dag og eru mjög þreyttir.“ Félagaskiptaglugginn lokar í vikunni og eftir það geta liðin ekki gert breytingar á sínum leikmannahópum. Verða einhverjar breytingar á liði Víkings. „Ég held ekki. Þetta er orðið mjög tæpt. Við erum búnir að reyna að tala við ákveðna aðila. Ef það dettur inn er það geggjaður bónus en ef ekki þá fáum við bara okkar menn heila til að takast á við loka átökin,“ sagði Arnar að lokum.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Fótbolti ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Íslenski boltinn Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Handbolti Fleiri fréttir ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Valur og Breiðablik í góðum gír í Lengjubikar kvenna Sjá meira