Innherji

Gengi bréfa Al­vot­ech rýkur upp með inn­komu er­lendra sjóða­stýringar­risa

Hörður Ægisson skrifar
Róbert Wessman, stofnandi og forstjóri Alvotech, en áþreifanlegar skortur á fjárfestingu frá erlendum sjóðum hefur átt ríkan þátt í því að ýta undir gengislækkun bréfa félagsins á undanförnum mánuðum.
Róbert Wessman, stofnandi og forstjóri Alvotech, en áþreifanlegar skortur á fjárfestingu frá erlendum sjóðum hefur átt ríkan þátt í því að ýta undir gengislækkun bréfa félagsins á undanförnum mánuðum. Vísir/Vilhelm

Nokkrir stórir erlendir hlutabréfasjóðir bættust nýir inn í hluthafahóp Alvotech á öðrum fjórðungi eftir að hafa staðið að kaupum á bréfum á markaði í Bandaríkjunum fyrir samanlagt jafnvirði marga milljarða króna. Skortur á fjárfestingu frá erlendum sjóðum hefur haft neikvæð áhrif á gengisþróun Alvotech að undanförnu en hlutabréfaverð félagsins rauk upp í Kauphöllinni í dag.


Tengdar fréttir

Árangur Al­vot­ech bendi til að fé­lagið geti orðið „al­þjóð­legur líf­tækni­lyfjarisi“

Alvotech hefur fengið skuldbindandi pantanir á meira en milljón skömmtum af Simlandi-hliðstæðu sinni við Humira í Bandaríkjunum fyrir þetta ár, sem tryggir félaginu umtalsverða hlutdeild á þeim markaði að sögn Barclays, en bankinn hefur hækkað verðmat sitt á Alvotech og telur fyrirtækið á góðri leið með að verða alþjóðlegur líftæknilyfjarisi. Stjórnendur Alvotech vinna nú í endurfjármögnun á skuldum félagsins, sem nema yfir hundrað milljörðum, með það fyrir augum að lækka verulega fjármagnskostnað.

Al­vot­ech í mót­vindi þegar eftir­spurn inn­lendra fjár­festa mettaðist

Gæfan hefur snúist hratt gegn hlutabréfafjárfestum í Alvotech sem hafa séð bréfin lækka um þriðjung eftir að félagið náði hinum langþráða áfanga að fá markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Enn er beðið eftir að fyrirtækið ljúki stórum sölusamningum vestanhafs og væntingar um innkomu nýrra erlendra fjárfesta á kaupendahliðina hafa ekki gengið eftir. Skarpt verðfall síðustu viðskiptadaga framkallaði veðköll á skuldsetta fjárfesta en á sama tíma og búið er að þurrka út stóran hluta af hækkun ársins hafa erlendir greinendur tekið vel í uppfærða afkomuáætlun Alvotech og hækkað verðmöt sín á félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×