Havertz og Saka af­greiddu Úlfana

Gabriel var ánægður með Kai Havertz sem skoraði fyrsta mark Arsenal á tímabilinu.
Gabriel var ánægður með Kai Havertz sem skoraði fyrsta mark Arsenal á tímabilinu. Getty/Stuart MacFarlane

Kai Havertz og Bukayo Saka sáu um að búa til bæði mörk Arsenal í ansi þægilegum 2-0 sigri liðsins á Wolves í dag, í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Arsenal komst yfir um miðjan fyrri hálfleik þegar Saka skrúfaði boltann af kantinum inn á miðjan teig, þar sem Havertz var mættur og skallaði boltann í netið.

Jörgen Strand Larsen var reyndar afar nálægt því að jafna metin fyrir Úlfana skömmu síðar en David Raya varði glæsilega skalla hans af stuttu færi.

Saka skoraði svo sjálfur seinna mark Arsenal á 74. mínútu, eftir stutta sendingu Havertz, en Arsenal-menn höfðu þá verið fljótir að taka aukaspyrnu og nýtt sér kæruleysi Úlfanna.

Arsenal spilar næst við Aston Villa á útivelli eftir viku en Úlfarnir eiga heimaleik við Chelsea.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira