Leik lokið: Víkingur R. - ÍA 1-2 | Skaga­menn fyrstir til að vinna í Víkinni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Skagamenn fagna.
Skagamenn fagna. Vísir/Anton Brink

Víkingar töpuðu í kvöld sínum fyrsta leik á heimavelli á tímabilinu þegar Skagamenn unnu 2-1 sigur í Fossvoginum. Víkiningur og Breiðablik eru nú efst og jöfn á toppi Bestu deildarinnar.

Víkingar komust yfir eftir sex mínútna leik með marki frá Valdimar Þór Ingimundarsyni en Ingi Þór Sigurðsson og Viktor Jónsson náðu að svara og snúa leiknum Skagamönnum í vil.

Víkingar gerðu fjórar breytingar í leikhléi og náðu að breyta takti leiksins. Skagamenn vörðust hins vegar frábærlega og tryggðu sér að lokum afar sætan sigur.

Nánari umfjöllun og viðtöl á Vísi innan skamms.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira