Heiðar byggir upp stöðu í smásölurisanum Festi
![Heiðar Guðjónsson segist telja Festi eiga mikið inni en vill aðspurður ekki tjá sig nánar um fjárfestinguna í félaginu.](https://www.visir.is/i/CA2593EA7F2D914AB28CAAEF6D9A9F089C020B8346BA725BAF45ED853EF5AF00_713x0.jpg)
Fjárfestirinn Heiðar Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri og aðaleigandi Sýnar um árabil, er kominn í hóp umsvifamestu einkafjárfestanna í Festi í kjölfar þess að þeir Þórður Már Jóhannesson og Hreggviður Jónsson seldu sig út úr félaginu fyrr í sumar. Heiðar hefur byggt upp stöðu í félaginu, sem rekur meðal annars eldsneytisstöðvar undir merkjum N1 og verslanir Krónunnar og Elko, í gegnum framvirka samninga.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/EC0264F6952319C62F5C5F695704B8B1D49050796EEC828A3F4917D9F4C2D435_308x200.jpg)
Festi festi kaup á Lyfju
Í dag fór fram uppgjör á greiðslu kaupverðs á öllu hlutafé Lyfju hf. til seljanda og er félagið þar með orðinn hluti af samstæðu Festi. Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi, segir þetta mikilvæg tímamót í vegferð Festis. Kaupverð nam 7.116 milljónum króna.