Innlent

Leit að ferða­mönnum á Breiða­merkur­jökli og fjölgun ofbeldisbrota

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á slaginu 12:00.
Hádegisfréttir Bylgjunnar eru á slaginu 12:00. Vísir

Leit að tveimur ferðamönnum, sem lentu undir ísfargi í skoðunarferð á Breiðamerkurjökli í gær, hófst að nýju klukkan sjö í morgun. Við heyrum frá vettvangsstjóra í hádegisfréttum á Bylgjunni.

Félag fjallaleiðsögumanna harmar slysið og kallar eftir ítarlegri rannsókn. Þá verður rætt við yfirlögregluþjón á Suðurlandi, sem stjórnar aðgerðum lögreglu á slysstað. 

Fjöldi ofbeldisbrota ungmenna hefur ríflega þrefaldast á tíu árum og alvarlegum ofbeldisbrotum fjölgað mikið. 

Gasmengun frá eldgosinu mun berast yfir Reykjanesbæ í dag og seinna í kvöld yfir Hafnir og Bláa lónið. Litlar breytingar hafa orðið á eldgosinu frá því í gær, enn er töluverð strókavirkni.

Þetta og margt fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 26. ágúst 2024



Fleiri fréttir

Sjá meira


×