Innlent

Heldur sumar­fundinn í Skaga­firði að þessu sinni

Atli Ísleifsson skrifar
Ríkisstjórnin mun funda á Gránu Bistro á Sauðárkróki á miðvikudaginn.
Ríkisstjórnin mun funda á Gránu Bistro á Sauðárkróki á miðvikudaginn. Vísir/Egill

Árlegur sumarfundur ríkisstjórnarinnar verður haldinn í Skagafirði á miðvikudag þar sem ráðherrar munu funda með fulltrúum sveitarfélaga innan vébanda Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að fundirnir munu fara fram á Gránu Bistro á Sauðárkróki, en ráðherrar munu ræða við fjölmiðla að fundi loknum.

Þetta er í sjöunda sinn sem ríkisstjórnin heldur sumarfund sem þennan, en á síðasta ári fór hann fram á Egilsstöðum. Árið 2022 fór sumarfundurinn fram á Vestfjörðum en áður hafði ríkisstjórnin haldið sumarfund sinn í Snæfellsbæ, í Mývatnssveit, á Hellu og á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×