Innlent

Sumar­ferðir ekki byrjaðar þegar skýrsla var gerð

Kjartan Kjartansson skrifar
Íshellir í Breiðamerkurjökli. Þeir myndast við leysingu á sumrin og verða aðgengilegir þegar henni lýkur seint á haustin. Undanfarin ár hafa ýmis ferðaþjónustufyrirtæki gert út á sumarferðir í íshella.
Íshellir í Breiðamerkurjökli. Þeir myndast við leysingu á sumrin og verða aðgengilegir þegar henni lýkur seint á haustin. Undanfarin ár hafa ýmis ferðaþjónustufyrirtæki gert út á sumarferðir í íshella. Vísir/Vilhelm

Margskonar hættur fylgja íshellum sem eru í eðli sínu óstöðugir og síbreytilegir samkvæmt skýrslu sem var unnin um íshellaferðir í Vatnajökulsþjóðgarði fyrir sjö árum. Í henni var ekki gert ráð fyrir að farið væri með fólk í hella að sumarlagi.

Bandarískur ferðamaður lést og kona hans slasaðist þegar ís hrundi ofan á þau úr gili í Breiðamerkurjökli á sunnudag. Fólkið var í skipulagðri ferð á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Ice Pic Journeys. 

Björgunarsveitarfólk leitaði að tveimur til viðbótar í ísnum fram á miðjan dag í gær þar til að í ljós kom að fyrirtækið veitti lögreglu rangar upplýsingar um hversu margir hefðu verið í hópnum. Enginn annar reyndist hafa lent undir íshruninu.

Nokkur fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja hefur selt íshellaferðir að sumri til, bæði í Breiðamerkurjökli og Kötlujökli. Önnur selja slíkar ferðir hins vegar aðeins á haustin og fram á vor.

Áhættan í lágmarki á sex mánaða tímabili

Ekki var gert ráð fyrir að fyrirtæki færu með ferðafólk í íshella að sumri til í skýrslu um aðferðir við mat á áhættu við slíkar ferðir sem Raunvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Vatnajökulsþjóðgarð árið 2017. Í því kemur fram að hellarnir myndist í leysingum á sumrin og að ekki sé hægt að fara inn í þá fyrr en vatnsrennsli detti niður síðla hausts.

Mjög breytilegt er hvenær leysingatímabilinu lýkur og hvenær það hefst aftur. Tímabilið þar sem leysing er lítil og áhætta við íshellaferðir er í lágmarki getur verið allt að átta til níu mánuðir en algengast er að það standi yfir í sex mánuði, frá byrjun nóvember til loka apríl. Þegar vetur eru mjög hlýir getur tímabilið farið niður í allt að fjóra mánuði.

Jafnvel hætta á flóðum eða krapaflóðum

Íshellar eru sagðir í eðli sínu óstöðugir og síbreytilegir í skýrslunni. Jafnvel á veturna sé hætta á hruni úr ísþakinu, vatnsrennsli eftir þeim geti valdið hættu eða gert þá ófæra og brunnar og sprungur ofan á þeim sem fyllast af snjó og krapa geta einnig valdið stórhættu.

Ekki var heldur sagt hægt að útiloka að vatn kæmi skyndilega niður íshella í flóði eftir að hafa safnast fyrir í smálón á jöklinum. 

Þá var nefnd hætta á krapaflóðum úr brunnum sem myndast á yfirborði jökuls yfir íshelli.

„Þau geta verið mjög hættuleg fyrir fólk ef það er á botni hellisins nærri slíkum brunni,“ sagði í skýrslunni.

Tugir björgunarsveitarmanna vann að leit og björgun á Breiðamerkurjökli eftir slysið sem varð á sunnudag.Vísir/Vilhelm

Sumarferðir ekki byrjaðar þegar skýrslan var gerð

Jón Gauti Jónsson, fjallaleiðsögumaður í Félagi íslenskra fjallaleiðsögumanna og einn höfunda skýrslunnar, segir að þegar skýrslan var unnin hafi menn ekki verið byrjaðir að fara í sumarferðir í íshella. Þar sem skýrsluhöfundar hafi einbeitt sér að raunverulegum íshellum sem myndast á sumrin og opnast eftir leysingu séu gríðarleg áhrif sumarsólarljóss á jökulísinn ekki rakin í skýrslunni.

Styrkur sólarljóssins þegar sólin er hæst á lofti veldur heimiklu niðurbroti á jökulísnum og segir Jón Gauti þá erfitt að meta gæði íssins. Áhrif sólar nái allt að fimmtíu sentímetra inn í ísinn sem morknar og verður ótraustur.

„Á sumrin er maður ofsalega skeptískur á allan ís sem þú getur ekki metið. Þú sérð ekkert blámann í honum, þú sérð bara hröngl,“ segir Jón Gauti.

Leiðsögumenn hafa færni til að meta aðstæður

Hann telur ekki hægt að segja afdráttarlaust að ekki ætti að fara í slíkar ferðir á sumrin enda hafi jöklaferðir tíðkast yfir sumarmánuðina. Þá hafi fundist staðir þar sem hægt sé að fara inn í skúta sem lifa af vorleysingu.

„Það er að undangengnu mjög ítarlegu mati. Það fer eftir styrkleika ísmyndunarinnar hvernig þú metur það sem jöklaleiðsögumaður. Þeir hafa færni til þess að meta þetta.“

Það sé í höndum vanra og þjálfaðra jöklaleiðsögumanna að meta aðstæðurnar hverju sinni og taka ákvörðun út frá þeim.

„Vanur leiðsögumaður með bein í nefinu segir hingað og ekki lengra. Ég vil ekki fara með hópinn minn inn á þetta svæði,“ segir Jón Gauti um það þegar aðstæður eru ekki öruggar.


Tengdar fréttir

Engar frekari ís­hella­ferðir að svo stöddu

Vatnajökulsþjóðgarður hefur farið þess á leit við ferðaþjónustuaðila sem við á, að þeir fari ekki í íshellaferðir á svæði þjóðgarðsins að svo stöddu. Allir hafa brugðist vel við þeirri beiðni, að því er kemur fram í tilkynningu frá þjóðgarðinum. Þá segir að til skoðunar hafi verið að gera enn meiri kröfur til rekstraraðila sem starfa í þjóðgarðinum.

Fyrir­tækið er frum­kvöðull í sumarís­hella­ferðum

Fyrirtækið sem var með 23 ferðamenn í íshellaferð við Breiðamerkurjökul í gær heitir Ice Pic Journeys samkvæmt heimildum fréttastofu. Það hefur sérhæft sig í ævintýralegum jöklaferðum á svæðinu og verið frumkvöðull í sumarferðum á jökulinn. Fyrirtækið þjónustar meðal annars ferðaþjónusturisann Guide to Iceland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×