Innlent

Þyrlusveitin kölluð til fjórum sinnum síðasta sólar­hringinn

Lovísa Arnardóttir skrifar
Útlit er fyrir að fjöldi útkalla á þessi ári sem flugdeild Landhelgisgæslunnar sinnir verði fleiri á þessu ári en því síðasta.
Útlit er fyrir að fjöldi útkalla á þessi ári sem flugdeild Landhelgisgæslunnar sinnir verði fleiri á þessu ári en því síðasta. Vísir/Vilhelm

Þyrlusveitir Landhelgisgæslunnar hafa sinnt fjórum útköllum síðasta sólarhringinn ofan á það að hafa sinnt viðbragði við Breiðamerkurjökli í gær. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrlusveitina hafa sinnt sjúkraflugi vegna bráðra veikinda á Hvammstanga, Hornbjargi og Grundarfirði og svo á skemmtiferðaskipi sem var um 150 sjómílur norður af Ísafirði.

Hann segir allt líta út fyrir að fjöldi útkalla verði meiri en í fyrra en þá var slegið met í fjölda útkalla þegar flugdeildin var kölluð út 314 sinnum yfir árið, þar af þyrlusveitin 303 sinnum.

„Það eru þessi fjögur þyrluútköll. Það er töluvert mikið á einum sólarhring. Svo ofan á það bætist auðvitað það sem var á Breiðamerkurjökli,“ segir Ásgeir og að þessi fjöldi sé í takt við það sem hafi verið í sumar.

Í maí, júní og júlí hafi þyrlusveitin sinnt fleiri útköllum en á sama tíma í fyrra.

„Ef fram heldur sem horfir gætum við séð fram á enn eitt metið í fjölda útkalla þyrlusveitarinnar,“ segir hann og að það liggi fyrir við lok árs.

Ásgeir segir sumarið mesta álagspunktinn og alla mönnun miða við það. Það séu almennt tvær þyrlur og áhafnir til taks. Það hafi verið þannig í dag og í gær. Þá hafi önnur þyrlan verið á Breiðamerkurjökli og hin að sinna útkalli á Hvammstanga sem dæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×