Bíó og sjónvarp

Snerting hlaut eftir­sótt verð­laun

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Egill Ólafsson í hlutverki Kristófers í kvikmyndinni Snerting.
Egill Ólafsson í hlutverki Kristófers í kvikmyndinni Snerting. Lilja Jóns

Leikstjórinn Baltasar Kormákur hefur hlotið hin eftirsóttu Roger Ebert Golden Thumb verðlaun fyrir kvikmyndina Snertingu. 

Frá þessu segir í tilkynningu frá aðstandendum kvikmyndarinnar.

Baltasar Kormákur segir verðlaunin mikinn heiður: „Roger Ebert var geysilega áhrifamikill og arfleið hans lifir enn. Ég deili þessum verðlaunum með samstarfsfólki mínu sem á ekki síður en ég þátt í velgengni Snertingar.“ 

Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2004 á Kvikmyndahátíð Rogers Eberts sem um árabil var einn þekktasti og áhrifamesti kvikmyndagagnrýnandi í Bandaríkjunum. Verðlaunin verða afhent á Kvikmyndahátíð Rogers Eberts í apríl á næsta ári en þar verður Snerting sýnd fyrir 1.400 áhorfendur á 50 feta tjaldi í einum fullkomnasta bíósal í Bandaríkjunum.

Heimsþekktir leikstjórar hafa áður fengið Gullna þumalinn, má þar nefna Oliver Stone, Ava DuVernay, Guillermo del Toro og Tilda Swinton.

Sögð besta mynd Baltasars

Snerting hefur verið sögð ein besta mynd ársins bæði hér á landi og í Bandaríkjunum og þá hafa gagnrýnendur sagt Snertingu bestu mynd Baltasars Kormáks.

Leikarar myndarinnar, ekki síst Egill Ólafsson, hafa fengið afbragðsdóma og það sama má segja um aðra sem koma að myndinni. Bergsteinn Björgúlfsson hefur til dæmis verið rómaður fyrir kvikmyndatöku, Sunneva Weisshappel fyrir leikmynd, Högni Egilsson fyrir tónlist og Margrét Einarsdóttir fyrir búninga.

Snerting hefur verið tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og er hún nú þegar stærsta mynd þessa árs á Íslandi. Á næstu mánuðum mun Universal Pictures dreifa myndinni um allan heim og var hún til að mynda nýlega frumsýnd í Ástralíu við afar góðar viðtökur.


Tengdar fréttir

Snerting Egils Ólafssonar við lífið og tilveruna

Egill Ólafsson segir mikilvægt að hreyfa sig til að vinna gegn framþróun Parkinson sjúkdómsins. Heimir Már slóst í gönguferð með Agli þar sem þeir ræddu um hlutverk hans í kvikmyndinni Snertingu og allt milli himins og jarðar.

New York Times lofar Snertingu

Sýningar á kvikmyndinni Snerting í leikstjórn Baltasars Kormáks hófust í Bandaríkjunum síðastliðinn föstudag. Í aðdraganda frumsýningarinnar hefur myndin hlotið frábæra dóma hjá þarlendum gagnrýnendum. 

Balti hélt að Pálmi myndi aldrei mæta

Baltasar Kormákur, leikstjóri kvikmyndarinnar Snerting, lýsir ótrúlegum tilþrifum Egils Ólafssonar, í hlutverki Kristófers í myndinni sem byggir á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Baltasar segist einnig hafa leitað, árangurslaust, logandi ljósi að rétta leikaranum í hlutverk Kristófers á yngri árum. Þegar stungið var upp á syni hans, Pálma Kormáki, hafi hann ekki haft neina trú á að sonurinn myndi hafa nokkurn áhuga.

Egill mætti með barnabörnin á forsýningu Snertingar

Hátiðarforsýning á íslensku kvikmyndinni Snertingu í leikstjórn Baltasar Kormáks fór fram með pompi og prakt í Smárabíó í gærkvöldi. Sýningin var gríðarlega vel sótt og voru þar meðal annars alþjóðlegar stórstjörnur sem vinna nú með Baltasar að þáttagerð hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×