Innlent

Enn til­kynnt um maga­kveisu á há­lendinu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Tilkynnt var um veikindi í Hrafntinnuskeri í gær.
Tilkynnt var um veikindi í Hrafntinnuskeri í gær. Mynd/Ferðafélag Íslands

Tilkynnt var um tvo veika einstaklinga í Hrafntinnuskeri í gær. Nóróveira hefur greinst í sýnum frá fólki sem veiktist af magakveisu á fjölsóttum ferðamannastöðum á hálendinu nýverið. Rannsókn landlæknis og heilbrigðiseftirlits Suðurlands á hópsmitinu stendur enn yfir. Ekki er hægt að fullyrða um uppruna smits, í neysluvatni eða annars staðar.

Alls hefur nóróveira greinst hjá níu einstaklingum sem höfðu viðkomu á Rjúpnavöllum og hjá tveimur skólabörnum sem meðal annars gistu í Emstrum. Í tilkynningu frá embætti landlæknis segir að vonir hafi staðið til þess að hópsýkingarnar væru yfirstaðnar en miðað við tilkynninguna sem barst í gær sé ljóst að svo sé ekki.

Alls um hundrað tilkynnt veikindi

Staðfest hefur verið að yfir sextíu manns veiktust í tengslum við ferðalag eftir Landmannaleið og að yfir fjörutíu hafa veikst nýlega á Laugaveginum.

Flestir þeirra ferðamanna sem veiktust voru á ferð um eða við Landmannaleið (Landmannalaugar, Landmannahellir, Áfangagil, Hólaskógur, Rjúpnavellir) eða í gönguferð eftir „Laugaveginum“ (Landmannalaugar, Hrafntinnusker, Álftavatn, Hvanngil, Emstrur, Þórsmörk (Básar)).

Fram kemur í tilkynningu að fjöldi þeirra sem veiktist er þó líklega töluvert hærri þar sem fæstir ferðamenn tilkynna veikindi sín til yfirvalda. Þá segir að erfitt sé að meta fjölda ferðamanna á þessum slóðum um hásumarið. Líklega séu hundruð manna á ferðinni á Laugaveginum á hverjum tíma.

Enn verið að greina sýni

Í tilkynningu segir að Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hafi haft samband við staðarhaldara í skálum á ofangreindum ferðamannastöðum. Gefin hafa verið út tilmæli um að sjóða allt neysluvatn og að þrífa alla yfirborðsfleti og búnað í skálunum með viðeigandi aðferðum.

Þá hefur heilbrigðiseftirlitið tekið sýni til rannsókna á neysluvatni í skálum á ofangreindum hálendisstöðum til þess að ganga úr skugga um að vatnsból eða neysluvatn séu ekki menguð af saurgerlum eða mögulega nóróveiru. 

Tekin hafa verið sýni úr eftirfarandi skálum: Rjúpnavöllum, Hólaskógi, Áfangagili, Landmannahelli, Landmannalaugum, Hrafntinnuskeri og Álftavatni. Áform eru um sýnatökur í Hvanngili, Emstrum og Básum.

Rannsaka nóróveiru og saurgerlamengun

Fram kemur í tilkynningu landlæknis að neysluvatnssýni séu rannsökuð með tilliti til saurgerlamengunar hérlendis en að nóróveiru þurfi að mæla á rannsóknarstofu erlendis. 

Þegar hefur greinst saurgerlamengun í neysluvatni á Rjúpnavöllum en ekki er vitað um veikindi vegna saurgerla. Fyrir aðra skála eru niðurstöður annaðhvort neikvæðar eða eru væntanlegar á næstu dögum. Niðurstöður frá erlendri rannsóknarstofu staðfesta að ekki greindist nóróveira í neysluvatnssýnum sem tekin voru á Rjúpnavöllum og í Landmannahelli.


Tengdar fréttir

Magakveisur ekki til þess að fólk forðist skála FÍ

Fólk hefur ekki afpantað gistingu í skálum Ferðafélags Íslands eftir að fregnir af nóróveirusmitum bárust í síðustu viku. Ólíklegt er talið að smitin megi rekja í vatnsból við skálana.

Óvíst hvernig skólahópurinn smitaðist

Allt bendir til að upp hafi komið nóróveirusmit í Emstruskála, Básum og í Þórsmörk þar sem hátt í fimmtíu börn og sjö fullorðnir veiktust í nótt. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir óljóst hvernig smitið kom upp.

Einkenni nóróveiru komin fram

„Einkennin eru ansi grunsamleg fyrir nóróveiru, sem er mjög smitandi og getur valdið hópsýkingum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×