Innlent

Gott veður fram að jólum en veturinn þungur eftir það

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Kristín Heiða Garðarsdóttir, starfsmaður á Dalbæ og umsjónarmaður veðurklúbbsins.
Kristín Heiða Garðarsdóttir, starfsmaður á Dalbæ og umsjónarmaður veðurklúbbsins. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Haustið verður gott og veturinn fram að jólum en eftir það verður hann þungur. Þetta er niðurstaða nýjasta fundar veðurklúbbsins á Dalbæ á Dalvík. 

„Fundur er settur í veðurklúbbi Dalbæjar, verið þið velkomin.”

Veðurklúbburinn á hjúkrunarheimilinu Dalbæ er löngu orðin landsþekktur fyrir veðurspár sínar en klúbburinn fundar reglulega og fer yfir stöðu mála og rýnir þá í stjörnukort og stöðu himintunglsins til að reyna að fá sem nákvæmustu spá.

Og hvað viljið þið segja með haustið og veturinn, hvernig verður þetta?

„Vonandi verður hann góður fram að jólum að minnsta kosti en svo gæti hann orðið þungur eftir það, janúar, febrúar og mars,” segir Þóra Jóna Finnsdóttir, félagi í veðurklúbbnum.

En þið lofið góðu veðri fram að jólum?

„Já, verðum við ekki að gera það, verður maður ekki að vera jákvæður,” bætir Þóra Jóna við.

Þóra Jóna Finnsdóttir og Magnús Páll Gunnlaugsson, félagar í veðurklúbbnum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Við byrjum á tungli, hvar það kemur upp og út frá því hvort það er snemma mánaðar og í hvað átt, það fer mikið eftir því. Og svo má líka kíkja á hvaða stjarna er nálægt jörðu, Það verður alveg þokkalegt veður fram að jólum en svo koma kaflaskipti upp úr áramótum,” segir Inga Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, félagi í veðurklúbbnum.

Inga Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, félagi í veðurklúbbnum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Hér koma veðuráhugamenn saman, þetta er grundvöllur þar sem veðuráhugafólk kemur saman og hver spáir í sín spil eða tunglstöðu, já, hver hefur ekki áhuga á veðrinu,” segir Kristín Heiða Garðarsdóttir, starfsmaður á Dalbæ og umsjónarmaður veðurklúbbsins.

En er klúbburinn sannspár eða er ekkert að marka hann?

„Já, það hefur alveg verið. Stundum hefur eitthvað fipast til en þá er þungt hljóð í mönnum,” segir Kristín Heiða og bætir við.

„Ég trúi því sem Alli sagði um að veturinn verður kannski mildur framan af en svo vitum við ekki hvað gerist.”

Síðasti fundur klúbbsins þar sem spáð var í veðrið í haust og vetur.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×