Lífið

Kynda undir orð­róm um ástar­sam­band

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Meryl Streep og Martin Short héldust í hendur á frumsýningu Only Murders in the Building. 
Meryl Streep og Martin Short héldust í hendur á frumsýningu Only Murders in the Building.  Michael Buckner/Variety/Getty Images

Hollywood goðsagnirnar Meryl Streep og Martin Short virðast vera að stinga saman nefjum. Þau segja hinsvegar ekkert vera á milli þeirra en bandarískir slúðurmiðlar keppast við að flytja fregnir af því að vel hafi farið á með leikurunum á frumsýningu sjónvarpsþáttanna Only Murders in the Building.

Í umfjöllun PageSix um málið kemur fram að myndband af þeim þar sem þau haldast í hendur á frumsýningunni hafi farið sem eldur í sinu um netheima. Leikararnir fara bæði með hlutverk í grínspennuþáttunum vinsælu þar sem Selena Gomez, Steve Martin fara með aðalhlutverkin ásamt þeim Martin Short og Meryl Streep. Stiklu úr fjórðu seríunni má horfa á neðst í fréttinni.

„Þetta getur ekki bara verið leikur. Það eiginlega hlýtur að vera eitthvað á milli þeirra,“ segir ónefndur heimildarmaður sem staddur var á frumsýningunni í samtali við bandaríska slúðurmiðilinn. Þau hafi mætt saman, haldist í hendur og farið vel á með þeim.

PageSix hefur eftir talsmanni Streep að leikararnir séu bara vinir. Í umfjöllun miðilsins segir að talsmaður Short hafi ekki svarað fyrirspurn miðilsins. Leikarinn hafi hinsvegar sagt í janúar að þau séu ekkert meira en bara vinir.

Ástæðan er sú að orðrómurinn um ástarsamband þeirra hefur verið á kreiki í töluverðan tíma. Í febrúar síðastliðnum sáust þau til að mynda úti að borða saman og fór gríðarlega vel á með leikurunum. Það og handaband þeirra á frumsýningunni nú hefur ekki orðið til þess að kveða niður orðróminn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×