Íslenski boltinn

HK sektað um 250 þúsund krónur fyrir ó­nýta markið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik hjá HK í sumar.
Úr leik hjá HK í sumar. vísir/diego

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ ákvað á fundi sínum í gær að sekta HK fyrir framkvæmd félagsins á leik liðsins gegn KR.

Þeim leik var eftirminnilega frestað þar sem annað marka vallarins var ónýtt og varamark reyndist ekki uppfylla kröfur.

Nefndin ávítir knattspyrnudeild HK og segir að framkvæmd og skipulag knattspyrnudeildar HK í aðdraganda fyrirhugaðs leiks HK og KR, sem fram átti að fara þann 8. ágúst sl. í Bestu deild karla, hafi verið verulega ábótavant.

Ekki nóg með það heldur fékk HK sekt upp á 250 þúsund krónur.

Hér að neðan má sjá dómsorðið:

„Að virtum öllum fyrirliggjandi gögnum er það álit nefndarinnar að framkvæmd og skipulag knattspyrnudeildar HK í aðdraganda fyrirhugaðs leiks HK og KR, sem fram átti að fara þann 8. ágúst sl. í Bestu deild karla, hafi verið verulega ábótavant. Nánar tiltekið er það mat nefndarinnar að framkvæmd og skipulag fyrirhugaðs leiks hafi verið ámælisvert og óásættanlegt og falli því undir ákvæði 5.10 í lögum KSÍ. Samkvæmt atvikalýsingum þeim sem lýst er í skýrslum eftirlitsmanns og dómara hafi HK virt að vettugi reglur um framkvæmd knattspyrnuleikja samkvæmt Handbók leikja 2024 og ákvæði 9. greinar reglugerðar um knattspyrnuleikvanga. Í handbók leikja er að finna reglur, ábendingar og tilmæli til félaga um framkvæmd leikja í meistaraflokki sem samþykkt var af stjórn KSÍ 13.03.2024. Eftirfarandi kemur m.a. fram í handbókinni:

Mörk

Mörkin og netin skulu vera samkvæmt knattspyrnulögunum. Minnt er á, að markstangir og þverslá skulu vera hvítar að lit. Einnig þurfa að vera til staðar varamörk.

Handbók leikja sækir stoð sína í heimild í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót, um að stjórn KSÍ setji nánari reglur og leiðbeiningar um einstök mót, sbr. grein 1.4. í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Er aga- og úrskurðarnefnd heimilt að beita viðurlögum samkvæmt lögum og reglugerðum KSÍ gagnvart m.a. aðildarfélögum KSÍ vegna brota þeirra á lögum KSÍ, reglugerðum KSÍ og öðrum reglum, sbr. grein 2.3. reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál.

Í 9. grein reglugerðar KSÍ um knattspyrnuleikvanga kemur skýrlega fram hvernig mörk og varamörk skuli vera og hvaða kröfur þau skuli uppfylla vegna keppnisleikja á Íslandsmóti í meistaraflokki. Þá komi þar skýrt fram að varamark verði að vera tiltækt á leikvanginum, sem auðvelt sé að setja upp ef aðstæður krefjast þess.

Með vísan til greinar 5.10., sbr. k lið 44.1. greinar í lögum KSÍ ákvað aga- og úrskurðarnefnd KSÍ því að sekta knattspyrnudeild HK vegna framkvæmdar og skipulags í aðdraganda fyrirhugaðs leiks HK og KR þann 8. ágúst sl. Þykir upphæð sektar knattspyrnudeildar HK hæfilega ákveðin kr. 250.000.“


Tengdar fréttir

Kórsmálinu ekki lokið: HK gæti enn verið refsað

Máli HK vegna frestaðs leiks við KR í Bestu deild karla er ekki lokið þrátt fyrir að leikurinn hafi farið fram í gærkvöld. Líklegt þykir að HK-ingar verði sektaðir vegna mistaka við framkvæmd leiks.

KR áfrýjar niðurstöðu KSÍ

Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, staðfesti í samtali við Vísi og Stöð 2 rétt í þessu að félagið ætlaði að áfrýja niðurstöðu Knattspyrnusambands Íslands í máli félagsins er kemur að leiknum sem átti að fara fram í Kórnum á dögunum.

KSÍ hafnar kröfu KR

Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur hafnað kröfu KR um sigur á HK í leik liðanna sem átti að fara fram í Bestu deild karla í knattspyrnu á dögunum.

KR kærir og segir KSÍ mismuna félögum

Knattspyrnudeild KR hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frestunar á leik liðsins við HK, í Bestu deild karla, og ætlar að kæra ákvörðun stjórnar KSÍ varðandi málið.

Stjórn KSÍ vísaði erindi KR frá

Stjórn KSÍ vísaði erindi KR frá, þar sem krafist var þess að KR yrði dæmdur sigur gegn HK eftir að leik liðanna var frestað á dögunum.

Fordæmalaust mál á borði KSÍ

Fordæmalaus staða er uppi vegna aflýsingar á leik HK og KR í Bestu deild karla í fótbolta í fyrrakvöld. Mótastjóri Knattspyrnusambands Íslands segir málið í ferli.

„Mannleg mistök á mörgum stöðum“

Framkvæmdastjóri HK harmar stöðuna sem upp kom í Kórnum í gær þegar leikur HK og KR í Bestu deild karla átti að fara fram. Unnið er að því að endurgreiða fólki sem greiddi sig inn á leikinn.

KR tók æfingu í Kórnum og stuðnings­menn sungu

Leik HK og KR í Bestu deild karla var frestað í kvöld þegar í ljós kom að annað markið sem spila átti með í Kórnum var brotið. KR skellti í æfingu í Kórnum í kjölfarið en stuðningsmenn liðsins fóru hvergi þó enginn væri leikurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×