Veður

Víða þurrt og bjart en bætir í vind í kvöld

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður átta til fimmtán stig í dag.
Hiti á landinu verður átta til fimmtán stig í dag. Vísir/Vilhelm

Útlit er fyrir fremur hæga vestlæga átt í dag og að víða verði þurrt og bjart veður, en skýjað og dálítil væta norðaustanlands fram yfir hádegi.

Á vef Veðurstofunnar segir að hiti á landinu komi til með að vera átta til fimmtán stig.

„Nú þegar þetta er skrifað er lægð yfir syðsta hluta Grænlands sem nálgast okkur smám saman. Í kvöld og nótt fer að bæta í vind vegna þessarar lægðar og þykknar upp.

Á morgun er því spáð sunnan 10-18 m/s með súld eða rigningu, hvassast og úrkomumest norðvestantil á landinu. Hiti 10 til 14 stig. Úrkomusvæði lægðarinnar nær ekki yfir á austanvert landið á morgun og því verður þar hægari vindur og þurrt með hita að 19 stigum.

Áðurnefnd lægð vestan við land sameinast síðan annarri lægð á laugardag og öðlast við það aukinn styrk. Þá verður því bæði hvassara og úrkomumeira en á morgun, víða allhvöss eða hvöss sunnanátt og talsverð rigning á laugardag. Áfram útlit fyrir mjög vætusamt veður sunnan- og vestanlands á sunnudag.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Sunnan 8-13 m/s, en 13-18 um landið norðvestanvert. Súld eða rigning, einkum norðvestantil, en yfirleitt þurrt austanlands. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á laugardag: Sunnan og suðaustan 13-20 og víða talsverð rigning, en úrkomulítið á norðaustanverðu landinu. Hægari og dregur úr vætu um kvöldið. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast norðaustantil.

Á sunnudag: Suðaustanátt með rigningu, en áfram úrkomulítið og hlýtt norðaustanlands.

Á mánudag: Suðvestanátt og dálitlir skúrir, en bjartviðri á austanverðu landinu. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á þriðjudag: Breytileg átt og líkur vætu í flestum landshlutum. Hiti 8 til 13 stig.

Á miðvikudag: Norðlæg átt og bjartviðri, en skýjað og lítilsháttar væta á Norður- og Austurlandi og kólnar þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×