Veður

Gul við­vörun vegna mikilla rigninga

Atli Ísleifsson skrifar
Viðvaranirnar taka gildi í fyrramálið og verða í gildi fram á laugardagskvöld.
Viðvaranirnar taka gildi í fyrramálið og verða í gildi fram á laugardagskvöld. Veðurstofan

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á vestanverðu landinu á morgun og hinn vegna mikillar rigningaspár.

Viðvörunin nær til Faxaflóa, Breiðafjarðar og Vestfjarða og tekur gildi klukkan sex í fyrramálið og er í gildi til klukkan 21 á laugardagskvöld.

Fram kemur að spáð sé talsverðri eða mikilli rigningu og megi búast við auknu afrennsi og vatnavöxtum í ám og lækjum sem auki hættu á flóðum og skriðuföllum og geti valdið tjóni og raskað samgöngum. Einnig sé aukið álag á fráveitukerfi.

Því er beint til fólks að sýna aðgát og einnig að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×