Lífið

Ekki einu sinni götusópararnir finna símann

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sandra með símann sem hvarf henni sjónum í tökum í gær.
Sandra með símann sem hvarf henni sjónum í tökum í gær.

Skemmtikrafturinn, framleiðandinn og leikarinn Sandra Barilli glataði símanum sínum við tökur á sjónvarpsþáttunum IceGuys í gær. Hún var í miðjum tökum með Herra Hnetusmjör og hafði í andartak lagt símann frá sér ofan á þaki bíls sem svo óheppilega vildi til að keyrði í burtu.

„Ég hef enn ekki fundið hann. Hann er horfinn, hann hvarf og meira að segja götusóparar Reykjavíkur fundu hann ekki, þannig ég hef ekki hugmynd um hvar hann er,“ segir Sandra hlæjandi í samtali við Vísi. Hún hefur húmor fyrir óhappinu sem átti sér stað á Laufásvegi í gær.

Þar var Sandra enn og aftur í landsþekktu hlutverki sínu sem umboðsmaðurinn Mollý í annarri seríu um strákabandið IceGuys sem nú er í bígerð. Ása Dýradóttir bassaleikari í Mammút og vinkona Söndru auglýsti eftir símanum í íbúahópi Miðborgarinnar.

„Sæl öll, aðal konan mín setti síma á þak bíls á meðan hún var eitthvað að athafna sig kl 16:30 í gær á Laufásvegi fyrir neðan Söngskólann í Reykjavík, og bíllinn keyrði burt eins og bílar gera,“ skrifar Ása í færslunni.

Þar kemur fram að líklegast hafi verið um ljósgráan smábíl að ræða, þó það sé ekki alveg víst. Síminn er iPhone, af gerðinni XS Max og er í fjólubláu hulstri. „Það er agalegt að fá ekki stöðug skilaboð frá henni yfir daginn, við leitum allra leiða til að finna blessaðan símann. Ef einhver hefur rekist á gripinn, endilega sendið mér skilaboð.“

„Ég var í tökum með Herra Hnetusmjör og ákvað að leggja hann frá mér ofan á bíl sem ég gerði síðast fyrir fimmtán árum,“ segir Sandra hlæjandi. „Ég hugsa bara að hann hafi verið að fara frá mér til þess að deyja, eins og köttur. Hann þorði ekki að gera það fyrir framan mig.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×