Innlent

Tveir fluttir með sjúkra­bíl eftir vinnu­slys í Hafnar­firði

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Alvarlegt vinnuslys varð í Hafnarfirði rétt í þessu.
Alvarlegt vinnuslys varð í Hafnarfirði rétt í þessu. Vísir/Vilhelm

Tveir voru fluttir með sjúkrabíl til aðhlynningar eftir vinnuslys í Hafnarfirði fyrir skömmu. Þetta staðfestir Þorsteinn Gunnarsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi.

Um alvarlegt slys er að ræða en óvíst í hvaða ástandi þeir slösuðu eru. Þorsteinn gat ekki sagt til um hvers konar slys er að ræða. Jafnframt vildi hann ekki segja á hvers konar vinnustað slysið varð. 


Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu eða myndir á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×