Innlent

Garða­bær segir upp rúm­lega þriðjungi skóla­liða

Kjartan Kjartansson skrifar
Garðabær bauð út ræstingar hjá stofnunum sínum í vor. Starfsmenn Daga taka við ræstingum af tólf skólaliðum sem var sagt upp í dag.
Garðabær bauð út ræstingar hjá stofnunum sínum í vor. Starfsmenn Daga taka við ræstingum af tólf skólaliðum sem var sagt upp í dag. Vísir/Vilhelm

Tólf skólaliðum af 34 sem hafa starfað hjá grunnskólum Garðabæjar var sagt upp í dag. Uppsagnirnar eru afleiðing samnings sem Garðabær gerði við ræstingafyrirtækið Daga um ræstingar fyrir flestar stofnanir bæjarfélagsins.

Stærsti hluti verkefna skólaliðanna sem var sagt upp sneri að ræstingum í grunnskólum, að því er segir í skriflegu svari Ástu Sigrúnar Magnúsdóttur, samskiptastjóra Garðabæjar, við fyrirspurn Vísis. Hún fullyrðir að umönnun barna í skólum í Garðabæ skerðist ekki við breytingarnar á fyrirkomulagi þrifa.

Störf þeirra 22 skólaliða sem eftir eru breytast: sumir þeirra verða stuðningsfulltrúar, aðrir frístundaliðar og nokkur verða áfram í hlutverki skólaliða ásamt öðrum verkefnum. Uppsagnarfrestur skólaliðanna sem voru látnir fara er mislangur og fer eftir starfsaldri.

Dagar áttu lægsta tilboðið í ræstingar í stofnunum Garðabæjar sem voru boðnar út í maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×