Handbolti

Læri­sveinar Guð­mundar í átta liða úr­slit

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Lærisveinar Guðmundar byrja tímabilið af krafti.
Lærisveinar Guðmundar byrja tímabilið af krafti. Vísir/Vilhelm

Fredericia, lið Guðmundar Þ. Guðmundssonar, er komið í átta liða úrslit dönsku bikarkeppninnar í handbolta eftir öruggan sjö marka sigur á Midtjylland.

Fredericia var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15-13, en kafsigldi mótherjum sínum í síðari hálfleik. Munurinn jókst og jókst þangað til lokaflautið gall, staðan þá 32-25 Fredericia í vil.

Hvorki Einar Þorsteinn Ólafsson né Arnór Viðarsson komust á blað fyrir Fredericia sem er komið í átta lið úrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×