Erlent

Trump ætlar að kjósa gegn rétti til þungunar­rofs

Kjartan Kjartansson skrifar
Aðgerðarsinnar sem berjast gegn þungunarrofi voru ekki par sáttir þegar Trump virtist gefa í skyn að hann ætlaði að greiða atkvæði með tillögu um að tryggja rétt kvenna til þungunarrofs í Flórída. Hann hefur nú tekið af allan vafa um það.
Aðgerðarsinnar sem berjast gegn þungunarrofi voru ekki par sáttir þegar Trump virtist gefa í skyn að hann ætlaði að greiða atkvæði með tillögu um að tryggja rétt kvenna til þungunarrofs í Flórída. Hann hefur nú tekið af allan vafa um það. AP/Charlie Neibergall

Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, segist ætla að greiða atkvæði gegn breytingu á stjórnarskrá Flórída sem tryggði konum rétt til þungunarrofs. Nýleg lög þar leggja bann við þungunarrofi áður en margar konur vita að þær eigi von á sér.

Repúblikanar í Flórída samþykkti ein ströngustu lög um þungunarrof í Bandaríkjunum eftir að hæstiréttur landsins afnam rétt kvenna til þess fyrir tveimur árum. Þungunarrof þar er bannað eftir sjöttu viku meðgöngu. Trump skipaði þrjá af sex hæstaréttardómurum sem kusu með því að afnema réttinn og hefur hreykt sér af því.

Kjósendur í Flórída greiða atkvæði um breytingartillögu við stjórnarskrá ríkisins sem lögfesti rétt kvenna til þungunarrofs og felldi bannið úr gildi samhliða forseta- og þingkosningunum í nóvember.

Afstaða Trump, sem er búsettur í Flórída, til tillögunnar var nokkuð óljós eftir að hann virtist gefa til kynna að hann ætlaði að greiða atkvæði með henni í gær. Það reitti stuðningsmenn hans úr röðum harðra andstæðinga þungunarrofs til reiði.

Í viðtali við Fox-fréttastöðina í dag að sagði Trump að hann teldi sex vikna bannið í Flórída ganga of langt. Á móti nefndi hann að hann teldi demókrata of ofstækisfulla og fór enn með lygar um að þeir vildu leyfa „þungunarrof“ jafnvel eftir að barn er komið í heiminn.

„Af þeirri ástæðu ætla ég að greiða atkvæði á móti,“ sagði Trump.

Valið skýrt

Í yfirlýsingu sem Kamala Harris, forsetaefni demókrata, sendi frá sér sagði hún að Trump hefði gert afstöðu sína til þungunarrofs morgunljósa og að hann ætlaði sér að styðja öfgafull boð og bönn. Næst ætluðu hann og repúblikanar að þrengja að aðgangi að getnaðarvörnum og frjósemismeðferðum. Valið í kosningunum væri skýrt.

„Ég treysti konum til þess að taka sínar eigin ákvarðanir um heilsu sína og ég tel að ríkisvaldið ætti aldrei að koma upp á milli konu og læknis hennar,“ sagði Harris.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×