Formúla 1

Á­tján ára strákur tekur við af Lewis Hamilton

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kimi Antonelli er mjög efnilegur ökumaður og Mercedes ætlar að veðja á hann.
Kimi Antonelli er mjög efnilegur ökumaður og Mercedes ætlar að veðja á hann. Getty/Clive Rose

Mercedes hefur fundið eftirmann Lewis Hamilton í formúlu 1 en sjöfaldi heimsmeistarinn er á leiðinni til Ferrari eftir þetta tímabil.

Nýliðinn Kimi Antonelli fær það verðuga verkefni að fylla í skarð Hamilton. Mercedes gaf það út í dag að búið væri að ganga frá samningum við strákinn.

Antonelli hefur verið að keyra í formúlu 2 en fær nú að koma inn í sviðsljósið í formúlu 1.

Það er ekki bara að hann hefur enga reynslu af formúlu 1 þá er hann aðeins átján ára gamall. Mercedes ætlar að veðja á þennan efnilega ökumann.

Antonelli hefur verið á hraðri uppleið en hann sleppti formúlu 3 og var að keppa í formúlu 2 í fyrsta sinn á þessu tímabili.

Hann er búinn að vinna tvær keppnir og er í sjötta sæti í keppni ökumanna í formúlu 2.

Antonelli mun nú keyra við hlið George Russell fyrir Mercedes liðið frá og með 2025 tímabilinu.

„Það er stórkostleg tilfinning að vera kynntur sem ökumaður Mercedes við hlið George. Það hefur verið draumur minn síðan ég var lítill strákur að keppa í formúlu 1. Ég vil þakka traustið sem mér hefur verið sýnt. Ég er enn að læra mikið en ég er tilbúinn fyrir þetta tækifæri. Ég mun einbeita mér að því að verða betri og ná í sem best úrslit fyrir liðið,“ sagði Kimi Antonelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×