Sport

Albert fær nýtt númer í Flórens

Smári Jökull Jónsson skrifar
Albert Guðmundsson er genginn til liðs við Fiorentina.
Albert Guðmundsson er genginn til liðs við Fiorentina. X-síða Fiorentina

Albert Guðmundsson gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Fiorentina á morgun þegar liðið mætir Monza á heimavelli. Fiorentina gaf í dag út hvaða númer Albert mun bera á treyjunni á tímabilinu.

Albert gekk til liðs við Fiorentina á dögunum frá Genoa en félagaskiptin höfðu legið í loftinu í töluverðan tíma. Albert hefur ekki komið við sögu í fyrstu tveimur leikjum Fiorentina á tímabilinu en hann hefur átt við meiðsli að stríða.

Fiorentina mætir Monza á heimavelli á morgun og gæti Albert þar leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Geri hann það mun hann vera með númerið 10 á bakinu en ítalska félagið birti í dag númer nýrra leikmanna liðsins. Albert lék í  treyju númer 11 hjá Genoa en fær tíuna í Flórens.


Tengdar fréttir

Albert kynntur til leiks í Flórens

Albert Guðmundsson er formlega orðinn leikmaður Fiorentina en ítalska félagið kynnti hann til leiks á samfélagsmiðlum nú rétt í þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×