Upp­gjörið: Víkingur - Valur 3-2 | Ævin­týra­leg endur­koma Víkinga og Valur stimplar sig út

Ólafur Þór Jónsson skrifar
víkingur anton brink
vísir/Anton

Víkingur vann í kvöld ótrúlegan endurkomusigur á Val í Bestu deild karla. Valsmenn misstu niður tveggja marka forskot á örskömmum tíma og stimpluðu sig út úr titilbaráttunni.

Stórleikur 21. umferðarinnar í Bestu deildinni fór fram í Víkinni í kvöld þegar Víkingar tóku á móti. Þeir sem mættu á heimavöll hamingjunnar í kvöld fengu allt fyrir peninginn í dag því leikurinn var hin besta skemmtun og gríðarlega tíðindamikill.

Leikurinn var einungis 20 mínútna gamall þegar Aron Elís Þrándarson fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt. Fimm mínútum síðar kom Gylfi Þór Sigurðsson Val yfir eftir að hafa fylgt eftir skalla Patriks Pedersen sem söng í stönginni. Gylfi var réttur maður á réttum stað og setti boltann örugglega í markið.

Víkingar því orðnir einum manni færri og lentir yfir. Holan því strax orðin djúp fyrir heimamenn en Valsarar í sjöunda himni.

Gestirnir bættu í forystuna eftir 33 mínútur en þá var það Tarik Ibrahimagic sem varð fyrir því óláni að skora í sitt eigið mark. Eftir frábæran undirbúning hjá Bjarna Mark Antonssyni.

Víkingar sóttu hart að Völsurum undir lok hálfleiksins en það dugði ekki til og fóru Valsarar með 2-0 stöðu í hálfleikinn.

Veislan var rétt að byrja. Eftir 65 mínútur fékk Hólmar Örn Eyjólfsson varnarmaður Vals beint rautt spjald eftir að hafa brotið harkalega á Daniejl Djuric. Við það voru liðin jöfn á vellinum en augnablikið snerist algjörlega.

Víkingar minnka muninn úr aukaspyrnunni eftir rauða spjaldið. Það var Aron Jóhannsson sem skoraði sjálfsmark. Það var líkt og allur Fossvogurinn lifnaði við. Allir í stúkunni stóðu upp og það var alveg ljóst fyrir hverja hræðu á vellinum að það var eitthvað merkilegt að fara að gerast.

Stuttu síðar jöfnuðu Víkingar og var það fyrrnefndur Tarik sem skoraði með skalla og bætti þar með upp fyrir sjálfsmarkið sitt. Heimamenn fullkomnuðu svo endurkomu sína á 82 mínútu þegar Valdimar Þór Ingimundarson tók ótrúlegan sprett upp nánast allan völlinn og renndi boltanum útá hægri kantinn þar sem Karl Friðleifur settu hættulega fyrirgjöf fyrir teiginn. Þar var Ari Sigurpálsson sem setti boltann í autt markið. Víkingar búnir að snúa leiknum sér í hag, 3-2.

Fleiri mörk komu ekki þrátt fyrir að Valsmenn hafi hafi þjarmað að Víkingum í lokin. Sigur Víkinga staðreynd sem halda þar með í við Breiðablik í toppbaráttunni.

Valsmenn sofa líklega lítið í nótt. Þeir voru með unninn leik og í raun stjórn á leiknum. Það var eins og sjálfstraust liðsins færi úr 100 niður í núll eftir fyrsta mark Víkinga. Ljóst er að með tapinu stimplaði Valur sig úr baráttunni um efsta sætið. Valsmenn eru ellefu stigum frá toppnum þegar sex umferðir eru eftir og nánast útilokað að bæði efstu liðin tapi svo mörgum stigum.

Það var ekki að sjá á Víkingum að liðið væri nýlent frá Andorra og búið að spila böns af leikjum síðustu vikur. Liðið tvíefldist í seinni hálfleik og áttu sigurinn skilið eftir frammistöðu leiksins.

Atvik leiksins

Hólmar Örn fékk rautt í seinni hálfleik leiknum. Hann fór í ansi klaufalega tæklingu rétt fyrir utan vítateig Víkinga. Þetta breytti algjörlega taktinum í leiknum og sló Valsara nokkuð. Þeir fengu mark í andlitið fljótlega eftir þetta og þar með komnir á afturfæturnar. Þetta sneri leiknum algjörlega og kom Víkingum á bragðið.

Stjörnur og skúrkar

Valdimar Þór Ingimundarson var öflugur í dag líkt og síðustu vikur. Hann vann endalaust og skapaði svo þriðja markið algjörlega með sprett sínum upp völlinn.

Maður leiksins var hinsvegar Tarik Ibrahimagic sem var stórkostlegur. Hann var sívinnandi og lúsiðinn. Hann vann helling af boltnum og henti sér fyrir einhverja 3-4 bolta þegar Valsmenn voru komnir í skotfæri. Þetta kórónar hann svo með glæsilegu marki.

Hjá Val var Gylfi Þór góður, alltaf hætta þegar hann var á boltanum og vann mikið aftur fyrir liðið. Vörnin var öflug framan af en hrundi algjörlega þegar Hólmar fór útaf með rautt spjald. Á sama tíma höfum við oft séð kantmenn Vals betri. Þeir Jónatan og Tryggvi voru í algjörum vandræðum og sköpuðu sér ákaflega lítið.

Dómarinn

Dagsverkið var ansi strembið hjá Sigurði Hirti og félögum í dómarateymi dagsins. Leikurinn var ansi harður og mikið um vafaatriði. Sigurður komst ágætlega frá verkinu, flest öll stóru atriðin voru að ég held rétt. Fyrir utan klára vítaspyrnu sem Valur átti að fá í fyrri hálfleik þegar boltinn fór í hendi varnarmanns Víkinga. 

Auk þess mátti Aron Jóhannsson vera þakklátur fyrir að haldast inná vellinum í seinni hálfleik þegar hann sparkar aftaní Tarik Ibrahimagic og hefði átt að fá rautt spjald. Það var mikið af atriðum sem hægt er að taka til en flest voru þau rétt. Samt sem áður var dómarinn kannski full fyrirferðar mikill í svo stórum leik og missti svolítið tökin á hitum á köflum.

Stemning og umgjörð

Umgjörð Víkinga er til fyrirmyndar, það breyttist ekki í dag. Vel gert við blaðamenn og áhorfendur. Stemmningin í Víkinni eftir að Víkingar skora var svo mögnuð, hreint út sagt. Það var mikið og gott andrúmsloft sem toppaði svo í lokin þegar brutust út mikil fagnaðarlæti er dómarinn flautaði af.

Viðtöl:

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira