Innlent

Biskupar frá öllum heims­hornum á vígslu­at­höfninni

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Guðrún Karls Helgudóttir tekur við embætti biskups Íslands í dag.
Guðrún Karls Helgudóttir tekur við embætti biskups Íslands í dag. Vísir/Vilhelm

Guðrún Karls Helgudóttir verður vígð í embætti biskups Íslands í Hallgrímskirkju klukkan tvö í dag. Hún tekur við embættinu af Agnesi M. Sigurðardóttur sem hefur verið biskup síðan árið 2012.

Í tilkynningu frá Biskupsstofu kemur fram að vígsluathöfnin hafi verið í undirbúningi í nokkra mánuði, og fjöldi fólks hafi tekið þátt í honum. Þátttakendur í athöfninni sjálfri eru tugir presta, djákna auk íslenskra og erlendra biskupa.

„Til gamans má geta þess að biskupar frá Svíþjóð, Noregi, Færeyjum, Grænlandi, Finnlandi, Danmörku, Wales, Skotlandi, Írlandi, Bretlandi, Palestínu og Eistlandi taka þátt í athöfninni,“ segir í tilkynningunni.

Biskupskápan sú fyrsta sinnar tegundar

Guðrún mun klæðast sérstakri biskupskápu, sem er sú fyrsta sem saumuð er á Íslandi á þessari öld, og sú fyrsta í íslenskri sögu sem saumuð er á konu. 

„Þá má einnig geta þess að kápan er hönnuð og saumuð af þeim Steinunni Sigurðardóttir, þjóðfræðingi og hönnuði, Kristínu Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu og Þórdísi Jónsdóttur útsaumslistakonu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×