„Betra að segja sem minnst“ Smári Jökull Jónsson skrifar 1. september 2024 22:51 Tufa var afar svekktur í leikslok. Vísir/Pawel Valur er ellefu stigum frá toppsætinu í Bestu deildinni eftir að 21. umferð lauk í kvöld. Liðið tapaði 3-2 gegn Víkingum í tíðindamiklum leik.Srdjan Tufagdzic þjálfari Vals var til tals eftir tapið á Stöð 2 eftir leik og var gríðarlega ósáttur með tapið. „
Það er betra að segja sem minnst.“ sagði Túfa er hann var inntur eftir fyrstu viðbrögðum og bætti við: „Þetta er ljót og leiðinleg tilfinning. Leikur sem við erum með í höndunum og algjöra stjórn. Komnir í 2-0 stöðu og einum manni fleiri. Að missa það í tap er með ólíkindum.“ Valur komst 2-0 yfir í fyrri hálfleik og voru einum manni fleiri eftir að Aron Elís Þrándarson leikmaður Víkings var rekinn útaf. Allt snerist á hvolf í seinni hálfleik og unnu Víkingar 3-2 í ævintýralegri endurkomu. „Við erum að fara í óþarfa panic. Í hvert skipti sem það gerist eitthvað í leiknum sem Víkingur gerir vel eða við gerum mistök þá förum í panic. Við endum fyrri hálfleikinn ekki vel, einum fleiri og tveimur mörkum yfir. Löguðum það aðeins í byrjun seinni hálfleiks áður en Hólmar fær rautt spjald. Þá erum við með stjórn á leiknum og þá finnst mér bara spurning um hvenær við skorum þriðja markið. Eftir rauða spjaldið þá missum við leikinn algjörlega úr okkar höndum og förum í algjör örvæntingu. Hleyptum bara lífi í Víking.“ sagði Túfa og bætti við um rauða spjaldið hans Hólmars. „Erfitt að segja, á eftir að sjá þetta aftur. Mér finnst hann svona aðeins of fljótur að lyfta rauða spjaldinu. En ég þarf að sjá þetta betur, mér finnst svona svolítið grimmt að gefa beint rautt fyrir eina tæklingu þar sem hann fer bæði í boltann og leikmann.“ Valur vildi fá tvö víti með einnar mínútu millibili í fyrri hálfleik en fengu ekkert, Túfa vildi lítið gagnrýna dómarann eftir leik. „Eftir svona leik er ekkert hægt að tala um atvik hjá dómaranum. Við vorum með leikinn og þrjú stig í höndunum og við bara köstum því frá okkur.“ Hrunið var algjört hjá Val eftir rauða spjaldið hjá Hólmari en Túfa virtist hafa fá svör um hvað gerðist. „Þetta er mjög erfitt að rýna í. Þetta gerist líka um daginn í Kaplakrika, við erum með leikinn í okkar höndum en töpum honum í jafntefli. Þetta sýnir okkur að við verðum að líta í eigin barm og vera fljótir að vinna í þessum málum. Þetta er ekki nógu gott.“ sagði Túfa og bætti við: „Ég bara á ekki til orð að við töpum þessum leik í dag. Framhaldið er að reyna að jafna sig eftir þennan leik. Ég þekki sjálfan mig vel og veit að það er erfitt að facea þetta daginn eftir leik. Nú eru bara tvær vikur framundan fyrir okkur sem við verðum að líta í eigin barm og leggja vinnu á okkur sjálfa. Verðum að setja meiri kröfur á okkur sjálfa.“ „Ég sé leikmenn Víkinga vera að henda sér fyrir alla bolta og leggja sig alla fram. Þetta er eitthvað sem við verðum að koma í okkar lið líka sem fyrst. Við ætlum að vinna í því.“ sagði Srdjan að lokum.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Alexander yngstur frá upphafi í efstu deild Íslenski boltinn „Betra að segja sem minnst“ Íslenski boltinn Gagnrýndi mótafyrirkomulagið en vann síðan 3,5 milljarða Golf Rúnar: Þetta er bara skelfilegt Fótbolti „Munum eiga góða möguleika á að lyfta bikar“ Enski boltinn „Fannst við aldrei bogna“ Íslenski boltinn Tvenna frá Mbappe í sigri Real Fótbolti „Síðasta tímabilið mitt hjá Liverpool“ Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Valur 3-2 | Ævintýraleg endurkoma Víkinga og Valur stimplar sig út Íslenski boltinn Hákon Arnar tekinn af velli í hálfleik en Albert ekki í hóp Fótbolti Fleiri fréttir Alexander yngstur frá upphafi í efstu deild „Betra að segja sem minnst“ „Fannst við aldrei bogna“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 3-2 | Ævintýraleg endurkoma Víkinga og Valur stimplar sig út Uppgjörið og viðtöl: HK - Fram 1-0 | HK úr fallsæti eftir sigurmark í lokin „Fyrir KR stoltið“ „Held að þetta hafi verið jafnteflisleikur sem við stálum í lokin” „Ég er í skýjunum og ætla að vera það fram eftir kvöldi“ „Eigum að fá mesta víti sem ég hef séð í langan tíma” Uppgjörið: KR - ÍA 4-2 | Þrenna Benónýs færði KR-ingum þrjú stór stig Uppgjörið: KA - Breiðablik 2-3 | Kristófer Ingi tryggði Blikum mikilvæg stig Uppgjörið: Tindastóll - Keflavík 2-1 | Keflavík í vondum málum eftir tap „Mér fannst vanta hugrekki í okkur“ Rúnar Páll: Ætluðum ekki að hleypa þessu upp í einhverja vitleysu Uppgjörið: FH - Stjarnan 0-3 | Stjarnan fór langleiðina með að tryggja sæti í efri hlutanum Uppgjörið: Vestri - Fylkir 0-0 | Fátt um fína drætti í rokinu Valdi KR fram yfir fjögur önnur lið: „Ég er bara þakklátur“ Óboðinn gestur truflaði leik í Lengjudeildinni „1-0 tap er ekki sanngjörn niðurstaða“ „Ekki annað hægt en að fara sáttur heim eftir þetta“ Fjölnismenn töpuðu óvænt á móti Gróttu og náðu ekki toppsætinu Uppgjörið: Þór/KA - FH 1-0 | Sandra María heldur áfram að fara illa með FH „Ekki oft sem maður skorar“ „Þetta er næsta skref“ Gæti orðið tvöfaldur meistari með sitt hvoru liðinu: „Ekki spurning að ég er með það markmið í huga“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-0 | Aftur voru Blikar í engum vandræðum með Víkinga Uppgjörið: Valur - Þróttur 1-1 | Dýr stig í súginn hjá meisturunum Bestu mörkin: Hitað upp fyrir úrslitakeppnina Katrín byrjaði með Damir er hann spurði í áttunda sinn Stúkan: Lárus Orri vann milljón en Albert giskaði vitlaust Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Valur 3-2 | Ævintýraleg endurkoma Víkinga og Valur stimplar sig út Íslenski boltinn
Gæti orðið tvöfaldur meistari með sitt hvoru liðinu: „Ekki spurning að ég er með það markmið í huga“
Uppgjörið: Víkingur - Valur 3-2 | Ævintýraleg endurkoma Víkinga og Valur stimplar sig út Íslenski boltinn