Skoðun

Ég neita að pissa standandi

Inga Sæland skrifar

Stjórnvöld hafa loksins tekið á einu brýnasta vandamáli þjóðarinnar — klósettmálunum!

Í „byltingakenndri“ reglugerð ráðherra Sjálfstæðisflokksins Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem tók gildi fyrr í sumar er kveðið á um innleiðingu kynlausra klósetta, þar sem allir geta létt á sér í sátt og samlyndi, óháð kyni og kynvitund. Í reglugerðinni segir að snyrtingar verði nú aðstöðumerktar, til dæmis með myndum af salerni, skiptiaðstöðu og þvagskálum, frekar en kynjamerktar. Í þeim tilvikum þar sem snyrtingar kvenna og karla verða áfram aðskildar, skuli einnig vera til staðar kynhlutlaus snyrting.

Reglugerðin býður því upp á tvo valkosti:

Valkostur 1: Salerni verða opin fyrir báðum kynjum. Konur geta notið þeirra forréttinda að setjast á útmignar klósettsetur og fá að upplifa spennuna sem fylgir því að vita aldrei hvaða óvænta gest þær hitta í næsta bás.

Valkostur 2: Öllum rekstraraðilum er gert að byggja ný kynlaus salerni. Sjálfstæðisflokkurinn, sem þykist talsmaður þeirra, neyðir þá til að fjárfesta í klósettbyltingunni miklu, kostnaður sem gæti hlaupið á milljónum króna. Þessi kostnaðarsama framkvæmd kemur á versta tíma fyrir marga litla og meðalstóra rekstraraðila sem þegar eiga í gríðarlegum erfiðleikum með að standa undir greiðslubyrði okurvaxta.

Þessi reglugerð er enn eitt dæmið um hvernig stjórnvöld hafa gert risavaxnar breytingar á samfélaginu án samráðs við almenning eða atvinnurekendur. Hávær minnihluti hefur á örskömmum tíma náð að snúa samfélaginu á hvolf með yfirgangi og aðkasti á alla þá sem voga sér að vera þeim ekki sammála.

Að taka af kynjaskipt salerni er hrein og klár aðför að persónuvernd og öryggi kvenna. Þrátt fyrir að við konur séum líka menn þá ættu flestir að vera búnir að fatta, að við erum ekki alveg eins. Ég mótmæli því af öllum kröftum og tel það gróft brot á mannréttindum okkar að þvinga okkur til að pissa standandi ellegar setjast á annara manna þvag.

En hvort sem þú þarft að deila bás með ókunnugum af hinu kyninu eða ert rekstraraðili sem berst í bökkum, þá er eitt víst; stjórnvöld velja frekar að ráðast á réttindi kvenna og sturta fé fyrirtækja niður í kynlaus klósett fremur en að takast á við þá kerfislægu kreppu sem hrjáir samfélagið okkar á öllum sviðum.

Það er kominn tími til að stíga niður fæti og segja STOPP! Hingað og ekki lengra!

Ég þori!

Höfundur er formaður Flokks fólksins.




Skoðun

Sjá meira


×