Sport

Neita því að styðja Kamölu Harris

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Skemmtileg auglýsing en fölsk.
Skemmtileg auglýsing en fölsk.

NFL-félagið Philadelphia Eagles neyddist til þess að gefa frá sér yfirlýsingu í gær vegna auglýsinga í borginni.

Þar var sagt að Kamala Harris væri forsetaframbjóðandi félagsins. Til að gera auglýsinguna enn raunverulegri var fólki bent á að fara á heimasíðu félagsins.

Auglýsingarnar voru á strætóskýlum og víðar í borginni. Einnig var þeim dreift á samfélagsmiðlum.

Eagles hefur neyðst til þess að taka fram að félagið komi hvergi nærri þessum auglýsingum og vinna standi yfir við að fjarlægja þær enda falskar.

Ekki er vitað hver standi á bak við fölsku auglýsingarnar.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×