Rafíþróttir

Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Ásmundur Viggósson, Pandaz, færði sig frá Dusty yfir í Þór og var í miklu stuði með nýja liðinu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar þegar Þór hafði betur en Saga í Counter Strike í gærkvöld.
Ásmundur Viggósson, Pandaz, færði sig frá Dusty yfir í Þór og var í miklu stuði með nýja liðinu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar þegar Þór hafði betur en Saga í Counter Strike í gærkvöld.

„Þetta var nú bara tiltölulega auðvelt,“ segir Ásmundur Viggósson, sem var í miklu stuði þegar Þór lagði Sögu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld.

Lið Þórs og Sögu mættust í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld þar sem Þór stóð uppi sem sigurvegari í seríunni 2-1.

Þór hafði betur í Anubis (13-5) en Saga í Dust2 (13-9) áður en Þór náði vopnum sínum aftur og lagði andstæðinginn (13-8) í Nuke.

„Ég var soldið mikið bara hlaupandi út um allt og mölvandi allt og alla, nema í leik tvö,“ segir Ásmundur sem er betur þekktur undir nikkinu Pandaz sem hann gegnir á vígvellinum.

Það er því óhætt að segja að Ásmundur, sem, spilaði fyrir NOCCO Dusty á síðasta tímabili, hafi mætt funheitur til leiks með Þór í gær enda um ákveðna endurkomu að ræða.

„Fyrsta tímabilið mitt í úrvalsdeildinni var í Þór þannig að maður er smá kominn heim bara,“ segir Ásmundur sem er fæddur 2003 og var ellefu ára þegar hann byrjaði að spila Counter Strike 2014.

Ásmundur segir aðspurður að ýmsar ástæður hafi verið fyrir því að hann ákvað að skipta yfir í Þór núna en lið NOCCO Dusty hefur stórmeistaratitil að verja og hefur verið í fremstu röð um árabil enda þekkt fyrir að setja mikinn metnað og æfingu í leikinn.

„Maður þurfti að fórna miklum frítíma þegar maður var í Dusty og svo er liðið bara búið að taka það miklum breytingum að það var í rauninni ekki sama liðið og ég byrjaði með,“ segir Ásmundur og bætir við að þetta hafi bara verið rétti tíminn til að skipta.

Beinar útsendingar Sjónvarps Símans í allan vetur

Sjónvarp Símans sýnir í vetur beint frá sjö deildum Rafíþróttasambands Íslands en þetta eru: Ljósleiðaradeildin í Counter Strike, ELKO-deildin í Fortnite, Tölvulistadeildin í Overwatch, Míludeildin í Valorant kvenna, Kraftvéladeildin í Dota 2, GR Verk deildin í Rocket League og Íslandsmót Símans í netskák.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×