Bíó og sjónvarp

Hlátur og grátur á Ljósvíkingum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Það fór vel á með forsetahjónunum, helstu leikurum myndarinnar og sonum Örnu. 
Það fór vel á með forsetahjónunum, helstu leikurum myndarinnar og sonum Örnu.  Mummi Lú

Kvikmyndin Ljósvíkingar eftir Snævar Sölvason var frumsýnd í Smárabíó í gær. Þangað lögðu rúmlega átta hundruð manns leið sína til að berja myndina augum í þremur sölum.

Þar á meðal var forseti Íslands Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar Björn Skúlason. Vel fór á með gestum og var mikið hlegið og grátið. Aðstandendur myndarinnar segja að fólk hafi verið himinlifandi að sýningu lokinni.

Ljósvíkingar fjallar um æskuvinina Hjalta og Björn sem reka fiskveitingastað í sínum heimabæ yfir sumartímann. Þá dreymir um að geta haft opið allt árið um kring og þegar óvænt tækifæri þess efnis bankar upp á, tilkynnir Björn vini sínum að hún sé trans kona og muni framvegis heita Birna. 

Þessar breytingar reyna á vináttuna og þurfa þau bæði að horfast í augu við lífið á nýjan hátt til þess að bjarga því sem mestu máli skiptir. Með helstu hlutverk fara Björn Jörundur Friðbjörnsson, Arna Magnea Danks, Vigdís Hafliðadóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Helgi Björnsson.

Myndin er að langstærstum hluta tekin á Ísafirði þar sem persónulegar sögur fléttast inn í ferðamannaflaum og komu skemmtiskipa til bæjarins.

Snævar hélt ræðu fyrir sýningu.Mummi Lú

Arna Magnea Danks, Björn Einar Danks og Engilbert Aron Danks.Mummi Lú

Björn Jörundur Friðbjörnsson, Helgi Björnsson og Daníel Ágúst Haraldsson.Mummi Lú

Arnór Sigurgeir Þrastarson, Magnús Jóhann Ragnarsson og Sólveg Klara Ragnarsdóttir.Mummi Lú

Jón Ólafsson, Ingvar Þórðarson og Einar Bárðarson.Mummi Lú

Björn Jörundur Friðbjörnsson og Magdalena dóttir hans.Mummi Lú

Eiríkur Bergmann og Aino Freyja.Mummi Lú

Spessi, Rannveig Rist og Jón Heiðar.Mummi Lú

Jakob Bjarnar og Jóhanna Steina Matthíasdóttir.Mummi Lú

Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm.Mummi Lú

Vigdís Jóhannsdóttir, Birgir Tryggvason, Hjálmar Örn Jóhannsson og Ljósbrá Logadóttir.Mummi Lú

Guðrún og Reynir.Mummi Lú

Birna Rún, Jakob Fríman og Katrín Borg Jakobsdóttir.Mummi Lú

Siggi Hall.Mummi Lú

Helgi Björnsson, Birgit Guðjónsdóttir og Vilborg Halldórsdóttir.Mummi Lú

Brynja Bjarnadóttir Anderiman og Arnar Gauti, betur þekktur sem Lil Curly.Mummi Lú

Einar Þór Jónsson og Arna Magnea Danks.Mummi Lú

Krummi í Mínus, Björn Jörundur, Snævar Sölvason og Helgi Björnsson.Mummi Lú





Fleiri fréttir

Sjá meira


×