Upp­gjörið: Breiða­blik - Minsk 6-1 | Leiðin til Lissabon byrjar með stór­sigri í Kópa­vogi

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Breiðablik fagnaði sætum sigri á Kópavogsvelli.
Breiðablik fagnaði sætum sigri á Kópavogsvelli.

Breiðablik vann 6-1 gegn Minsk frá Belarús í undankeppni Meistaradeildarinnar og spilar gegn Sporting frá Portúgal næsta laugardag, úrslitaleik upp á umspilseinvígi um sæti í Meistaradeildinni.

Breiðablik var mun betri aðilinn allan tímann, eins og búist var við fyrirfram. Leikurinn hófst vel líka, Vigdís Lilja kom Blikum yfir eftir tæpar tvær mínútur. Mörkin og marktækifærin komu svo í stórskömmtum allan fyrri hálfleikinn.

Katrín Ásbjörnsdóttir átti stoðsendinguna í fyrsta markinu, skoraði svo annað markið úr frákasti eftir skot Samönthu Smith. Andrea Rut Bjarnadóttir varð þriðja á blað með glæsimarki áður en Samantha skoraði það fjórða.

Eftir bæði fyrsta og fjórða markið slökku Blikakonur á sér í smástund. Það skilaði sér í frábæru færi í fyrra skiptið og svo gestamarki í seinna skiptið. Skot fyrir utan teig frá Liönu Miroshnichenko sem small í stöngina og inn.

Gestirnir tóku orkuna sem markið gaf þeim með sér inn í seinni hálfleikinn en féllu fljótt aftur niður þegar Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði fimmta mark Breiðabliks eftir frábæran sprett Samönthu upp hægri kantinn.

Leikurinn róaðist töluvert niður eftir það, margar skiptingar en fá færi til að segja frá.

Katrín Ásbjörnsdóttir bætti einu mark við undir lokin, fullkomnaði sína þrennu, kórónaði frábæra frammistöðu og innsiglaði 6-1 sigur.

Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði þrennu.

Atvik leiksins

Það er ekki úr mörgu að taka í leik sem var algjörlega í eigu eins liðs frá upphafi. Framlína Blika komst á öll á blað, Heiða Ragney sat djúpt fyrir aftan þær og vildi setja eitt mark sjálf. Þrumaði á markið beint úr aukaspyrnu af einhverju fjörutíu metra færi. Sláin út. Eftirminnilegt atvik.

Stjörnur og skúrkar

Framlína Blika til algjörrar fyrirmyndar. Endalaus færi og allar sem byrjuðu komust á blað. Kannski ekki alveg sömu sögu að segja um aftari leikmenn vallarins, slökktu á sér í nokkur skipti. Hefðu hundrað prósent getað haldið hreinu í þessum leik.

Stemning og umgjörð

Í öll horn litið og öllu til tjaldað á Meistaradeildarkvöldi í Kópavogi. Til fyrirmyndar, bæði í leik kvöldsins og utanumhaldið sem fylgdi fyrri leik dagsins.

Mæting með ágætis móti og stuð í stúkunni allan tímann.

Dómarar [6]

Ungverskt þríeyki hélt um flautu og flögg með Ítala á hliðarlínunni sem fjórða sett af augum. Tvö atvik, eða tvö spjöld sem dómarinn sleppti, ótrúleg ákvörðun svo ekki sé meira sagt. En auðvitað ekkertsem hafði áhrif á framvindu eða niðurstöðu leiks þannig séð.

Viðtöl

Berast á Vísi innan skamms.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira