Innherji

Stærsti hlut­hafinn studdi Gildi og lagðist gegn kaup­réttar­kerfi Heima

Hörður Ægisson skrifar
Gerður Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Brú, sem er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins. 
Gerður Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Brú, sem er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins.  Vísir/Vilhelm

Þótt stjórn Heima hafi gert verulegar breytingar á upphaflegum tillögum sínum að kaupréttaáætlun til handa lykilstjórnendum eftir að hafa mætt andstöðu frá Gildi þá lagðist stærsti hluthafi fasteignafélagsins, Brú lífeyrissjóður, gegn innleiðingu á slíkum kaupréttum en laut í lægra haldi fyrir meirihluta hluthafa. Lífeyrissjóðurinn fylkti sér jafnframt að baki Gildi í andstöðu við tillögu stjórnar Haga að kaupréttarkerfi sem var samþykkt með nokkuð naumum meirihluta á hluthafafundi í liðinni viku.


Tengdar fréttir

Líf­eyris­sjóðir opin­berra starfs­manna studdu ekki kaup­réttar­kerfi Regins

Tvær stærstu hluthafar Regins, lífeyrissjóðirnir LSR og Brú, greiddu ekki atkvæði með tillögu stjórnar fasteignafélagsins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur sem var kynnt fjárfestum í aðdraganda aðalfundar fyrr í vikunni. Ekki náðist nægjanlegur meirihlutastuðningur fyrir tillögunni eftir að lífeyrissjóðurinn Gildi bókaði andstöðu við kaupréttarsamningana og taldi rétt að hluthafar myndu taka afstöðu til helstu skilmála þegar slík kerfi væru tekin upp.

Telur „æski­legt“ að fleiri líf­eyris­sjóðir taki upp sömu á­herslur og Gildi

Stjórnarformaður Gildis, sem hefur iðulega beitt sér gegn því sem sjóðurinn hefur talið vera „óhóflegar“ bónusgreiðslur eða kaupréttarsamningar hjá félögum í Kauphöllinni, kallar eftir því að aðrir lífeyrissjóðir fylgi í sömu fótspor og Gildi. Sjóðurinn taldi ástæðu til að framfylgja hluthafastefnu sinni af „meiri þunga en áður“ á nýafstöðnum aðalfundum skráðra félaga, að hans sögn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×