Sport

Krefst að­gerða gegn of­beldi „afbrýðisamra kærasta“

Sindri Sverrisson skrifar
Rebecca Cheptegei var frábær hlaupakona sem meðal annars keppti í maraþoni á Ólympíuleikunum í París.
Rebecca Cheptegei var frábær hlaupakona sem meðal annars keppti í maraþoni á Ólympíuleikunum í París. Getty/Jiang Qiming

Sebastian Coe, forseti alþjóða frjálsíþróttasambandsins, kallar eftir samstöðu í baráttu gegn heimilisofbeldi í garð frjálsíþróttakvenna, eftir að Rebecca Cheptegei lést í gær, 33 ára að aldri. Þekktur frjálsíþróttalýsandi krefst aðgerða gegn „afbrýðisömum kærustum og eiginmönnum“.

Cheptegei var flutt á neyðarmóttöku sjúkrahúss í Eldoret í Kenía á sunnudag, eftir að fyrrverandi kærasti hennar hellti yfir hana bensíni og kveikti í. Hún fékk brunasár á 75% líkamans og lést á sjúkrahúsinu í gær.

Þetta er í þriðja sinn á þremur árum sem að hlaupakona er myrt í Kenía. Damaris Mutua fannst látin á heimili sínu árið 2022 eftir að hafa verið kæfð með kodda, og Agnes Tirop hafði nokkrum mánuðum fyrr verið stungin til bana. Í báðum tilvikum beinist aðalgrunurinn að maka en eiginmaður Tirop hefur verið ákærður fyrir morð og leit stendur yfir að kærasta Mutua.

„Íþróttin okkar hefur misst hæfileikaríka hlaupakonu á eins sorglegan og óhugsandi hátt og hægt er. Rebecca var ótrúlega fjölhæf hlaupakona sem átti enn eftir að afreka margt á götum, í fjöllum og í utanvegahlaupum,“ sagði Coe á heimasíðu frjálsíþróttasambandsins.

Hann kveðst hafa sett sig í samband við stjórnarmeðlimi í Afríku til að sjá hvernig alþjóðasambandið geti hjálpað til, og hvernig mögulegt sé að efla öryggisstefnu sambandsins til að berjast gegn ofbeldi og níði utan íþróttarinnar. Verja þurfi íþróttakonur eins og hægt sé.

Rob Walker, þekktur frjálsíþróttalýsandi í sjónvarpi, skrifaði á Twitter: „Ég hef orðið vitni að mikilli þróun í Austur-Afríku síðustu tuttugu ár. En núna þarf að bregðast við þeirri meðferð sem frjálsíþróttakonur verða fyrir af hendi afbrýðisamra eiginmanna/kærasta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×