Lífið

Naglalökkuð Ás­laug blæs á sér hárið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kallar ekki allt ömmu sína og það með naglalakk og blásið hár.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kallar ekki allt ömmu sína og það með naglalakk og blásið hár. Vísir/Vilhelm

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir nýsköpunar- og háskólamálaráðherra hóf daginn á að blása á sér hárið áður en hún mætti á nefndarfund. Áslaug birti myndband á Instagram þar sem hún sendir Bolla í Sautján tóninn fyrir umdeild ummæli hans í fréttum í gær.

Þar má sjá að Áslaug er jafnframt naglalökkuð með fallegu bláu naglalakki en eins og alþjóð veit baðst Bolli síðdegis í gær afsökunar eftir að hafa sagt að ekki væri verið að leita að „einhverjum nýútskrifuðum stúlkum sem ætla bara að blása á sér hárið og naglalakka sig,“ á viðbótarlista tengdan Sjálfstæðisflokknum.

„… If you don't like the way I talk, then why am I on your mind?“

Dua Lipa

Ummælin vöktu strax hörð viðbrögð og svöruðu nokkrir Sjálfstæðismenn Bolla fullum hálsi. Til að mynda skrifaði Áslaug Arna færslu á X þar sem hún sagði „Hjá sumum er Bollinn alltaf hálf tómur, en hjá „nýútskrifuðum” stelpum með blásið hár og naglalakk er Bollinn fullur!“

Bolli ræddi DD-listann aftur í Reykjavík síðdegis í gær og baðst þá afsökunar á ummælum sínum. Þau virðast hafa setið í Áslaugu sem var stórglæsileg á Instagram með blásið hár og naglalökkuð. Með myndbandinu lét hún fylgja með lagið Blow Your Mind með Dua Lipa.

Ráðherrann sendi Bolla sínum tóninn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×