Fótbolti

Magic fjár­festir í kvenna­liði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Magic Johnson hefur fjárfest í fjölda félaga í Bandaríkjunum.
Magic Johnson hefur fjárfest í fjölda félaga í Bandaríkjunum. vísir/getty

Einn besti körfuknattleiksmaður sögunnar, Magic Johnson, hefur ákveðið að fara með peningana sína á nýjan stað.

Hann er kominn í hluthafahóp hjá Washington Spirit sem spilar í NWSL-deildinni í fótbolta í Bandaríkjunum.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að koma inn í þennan hluthafahóp. Þetta er ótrúlegt tækifæri og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum við að koma félaginu á toppinn,“ sagði Magic í yfirlýsingu.

Hinn 65 ára gamli Magic varð NBA-meistari fimm sinnum á ferlinum og þrisvar var hann valinn besti leikmaður deildarinnar.

Magic á þegar hlut í Washington Commanders (NFL), Los Angeles Dodgers (MLB), Los Angeles Sparks (WNBA) og LAFC (MLS).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×