Innlent

Fyrsta Airbus-þota Icelandair að verða til­búin í reynsluflug

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá smíði þotunnar í verksmiðju Airbus í Hamborg. Hún er af gerðinni A321neo.
Frá smíði þotunnar í verksmiðju Airbus í Hamborg. Hún er af gerðinni A321neo. Airbus/Icelandair

Smíði fyrstu Airbus-þotu Icelandair er langt komin í flugvélaverksmiðju í Hamborg og er hún væntanleg til landsins í nóvember. Icelandair á von á fjórum slíkum þotum í flotann fyrir næsta sumar.

Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá myndir úr samsetningarverksmiðju Airbus í Hamborg. Þar er búið að mála merki Icelandair á fyrstu þotuna, sem er af gerðinni A321neo.

Bjarni Jónsson stýrir innleiðingu Airbus-vélanna í flota Icelandair.Arnar Halldórsson

„Hún er í málningu núna og klárum það á mánudaginn. Næsta verk er að koma undir hana hreyfla og klára farþegarýmið. Svo verður hún í raun bara tilbúin í flugprófanir hjá Airbus,“ segir Bjarni Jónsson, verkefnisstjóri hjá Icelandair, sem stýrir innleiðingu Airbus-vélanna hjá flugfélaginu.

Merki Icelandair er komið á stélið.Airbus/Icelandair

Flugáhugamenn í Aðdáendaklúbbi Loftleiða fengu í dag kynningu frá Bjarna í Café Atlanta í Kópavogi á helstu tækniatriðum flugvélarinnar. 

Ennfremur því verkefni að taka hana í þjónustu félagsins, sem felst meðal annars í þjálfun starfsfólks og áhafna, þar á meðal flugvirkja, flugfreyja og flugmanna.

Þetta er fyrsta Airbus-þotan sem smíðuð er fyrir Icelandair.Airbus/Icelandair

„Þannig að við verðum með mannskap kláran,“ segir Bjarni.

187 farþegasæti verða um borð, álíka og í gömlu 757-þotunum. Von er á þeirri fyrstu í nóvember og það er ekki bara ein á leiðinni heldur fjórar. Tvær koma fyrir áramót og aðrar tvær eftir áramót og verða allar komnar í rekstur fyrir næsta sumar.

Málun flugvélarinnar lýkur á mánudag.Airbus/Icelandair

Icelandair leigir þessar þotur þar til félagið fær nýjustu og langdrægustu tegundina af A321-línunni, XLR-gerðina, eftir fimm ár. Bjarni segir eftirvæntingu meðal starfsfólks Icelandair að fá Airbus.

„Það sést kannski bara best á því að mikið af flugmönnum vildu skipta. Þannig að þetta er eitthvað nýtt og spennandi,“ segir Bjarni.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Nýjasta þota Airbus í krefjandi prófunum í hvassviðri í Keflavík

Flugvélaframleiðandinn Airbus nýtti sér hvassviðrið á Íslandi í dag til flugprófana á nýjustu farþegaþotu sinni með því að lenda henni margsinnis í stífum hliðarvindi. Þetta er samskonar þota og ráðamenn Icelandair veðja á sem sína framtíðarvél.

Segir nýju Airbus-þoturnar fullkomnar fyrir Icelandair

Icelandair skrifaði í dag undir samning um kaup á allt að 25 Airbus-þotum. Jafnframt hefur félagið gert leigusamning um fjórar Airbus- þotur og verða þær fyrstu afhentar fyrir lok næsta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×