Lífið

Stjörnu-Sæ­varar leiddu saman hesta sína

Kjartan Kjartansson skrifar
Það fór vel á með Stjörnu-Neil og Stjörnu-Sævari þegar þeir hittust í Hayden-stjörnuverinu í New York.
Það fór vel á með Stjörnu-Neil og Stjörnu-Sævari þegar þeir hittust í Hayden-stjörnuverinu í New York. Sævar Helgi Bragason

Tveir þekktir vísindamiðlarar leiddu saman hesta sína þegar Sævar Helgi Bragason og Neil Degrasse Tyson hittust í New York í Bandaríkjunum í dag. Fundur þeir tengist að hluta frétt Vísis af heimsókn Tyson til Íslands þar sem honum var lýst sem bandarískum Stjörnu-Sævari.

Tyson er stjarneðlisfræðingur við Hayden-stjörnuver Vísindasögusafns Bandaríkjanna í New York. Hann er jafnframt heimsþekktur vísindamiðlari, ekki síst sjónvarpsþættina „Cosmos“, endurgerð af sígildum vísindaþáttum stjörnufræðingsins Carls Sagan. Hann hefur einnig stýrt útvarpsþáttunum Startalk Radio.

Sævar Helgi hefur getið sér gott orð fyrir að boða fagnaðarerindi stjörnufræðinnar á Íslandi og síðar fyrir vísindamiðlun almennt. Fyrir það hefur hann hlotið nafnbótina Stjörnu-Sævar í fjölmiðlum. 

Þegar Tyson kom hingað til lands í júní þótti að minnsta kosti einum blaðamanni Vísis því ekki óeðlilegt að tala um hann sem Stjörnu-Sævar Bandaríkjamanna.

Hafði húmor fyrir viðurnefninu

Í stuttu samtali við Vísis segir Sævar Helgi að hann hafi sent Tyson frétt Vísis í sumar og að honum hafi haft húmor fyrir því sem þar stóð. Hann hafi þá boðið Sævar Helga heim næst þegar hann ætti leið um New York. Þeir hittust svo á skrifstofu Tyson í Hayden-stjörnuverinu í dag.

„Loksins, loksins hitti hinn bandaríski Stjörnu-Sævar þann íslenska,“ segir í færslu Sævars Helga á samfélagsmiðlum með myndum sem hann birti af sér með Tyson í dag.

Bæði Tyson og Sævar Helgi hafa verið fastagestir í fjölmiðlum þegar útskýra þarf vísindin á alþýðlegan hátt.Sævar Helgi Bragason

Sævar Helgi segir að þeir Tyson hafi meðal annars rætt um Ísland og norðurljós en Tyson hefur aldrei séð þau almennilega.

„Við ætlum einhvern tímann að bæta úr því,“ segir Sævar Helgi sem gaf Tyson nýjustu bók sína „Iceland at Night“ sem fjallar um norðurljósin og næturhimininn yfir Íslandi. Babak Tafreshi, ljósmyndarinn sem tók myndirnar fyrir bókina, er sameiginlegur vinur þeirra Tyson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×