Skoðun

Breytingar, gjörið svo vel

Einar Þorsteinsson skrifar

Lykillinn að því að geta veitt borgarbúum góða þjónustu er að reka borgina með ábyrgum hætti. Í upphafi kjörtímabilsins kom í ljós 16 milljarða halli á borgarsjóði. Meirihlutinn einsetti sér að snúa honum í afgang á tveimur árum. Í fyrra náðist með markvissum hagræðingaraðgerðum að minnka hallann um tæpa 11 milljarða. Sex mánaða uppgjör borgarinnar í ár sýnir að við erum komin réttu megin við núllið og skilum tæplega 200 milljóna króna afgangi. Verkefninu er þó ekki lokið.

Þetta er í fyrsta sinn í fimm ár sem A - hluti borgarinnar er rekinn með afgangi en A-hluti borgarinnar er sá hluti rekstrarins sem er fjármagnaður með skatttekjum. Rekstrarniðurstaða bæði A- og B-hluta er einnig jákvæð um 406 milljónir og er 7,1 milljarði betri en á sama tíma í fyrra. Í A- og B- hluta eru fyrirtæki borgarinnar reiknuð með, m.a. Orkuveitan sem er langstærsta fyrirtæki borgarinnar.

Stöðugildi standa í stað milli ára

Þetta er áfangasigur fyrir meirihlutann í borginni og þetta er áfangasigur fyrir borgarbúa. Verkefnið er að halda áfram á sömu braut. Síðan ég settist í borgarstjórn og við í Framsókn í meirihluta borgarstjórnar höfum við séð jákvæð merki um að fjármálin séu að þróast í rétta átt með skýrum rekstraráherslum og höfum raunar verið í hagræðingaraðgerðum allt kjörtímabilið.

Stærstur hluti útgjalda borgarinnar eru laun. Þess vegna skiptir miklu máli að sýna aðhald í ráðningum. Undanfarin ár hefur stöðugildum fjölgað en nú höfum við innleitt ráðningarreglur og stafræna yfirsýn til þess að ná betri tökum á starfsmannafjölda. Í sex mánaða uppgjörinu sjáum við hversu vel þetta nýja verklag virkar, stöðugildi borgarinnar standa í stað milli ára þrátt fyrir að íbúum fjölgi og þjónusta sé aukin.

Með innri hagræðingu, betra skipulagi og sama starfsmannafjölda hjá borginni náum við að veita ört stækkandi hópi Reykvíkinga betri þjónustu í velferðarmálum, skólamálum, fjölskyldum á flótta og bætum snjómokstur og sorphirðu svo fátt eitt sé nefnt.

Skýr fókus á markmiðin

Jákvætt sex mánaða uppgjör gefur góð fyrirheit um framhaldið en við erum ekki komin fyrir vind. Nú er unnið að fjárhagsáætlun næsta árs og það er afar mikilvægt að sýna áfram þétt aðhald enda brýnt að eyða ekki um efni fram. Ég er þakklátur öflugum hópi stjórnenda borgarinnar sem vinnur samhentur með meirihlutanum að því að snúa við rekstri borgarinnar í anda þeirra breytinga sem við höfum sett á oddinn.

Áætlanir fyrir næstu misseri eru skýr, að taka fleiri skref í átt að ábyrgum rekstri og skapa svigrúm til þess að bæta enn frekar þjónustu við Reykvíkinga.

Höfundur er borgarstjóri.




Skoðun

Sjá meira


×