Lífið

Þetta eru liðin í Kviss

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Björn Bragi Arnarsson þáttastjórnandi í KVISS.
Björn Bragi Arnarsson þáttastjórnandi í KVISS. Hulda Margrét

Spurningaþátturinn Kviss hefur göngu sína á ný annað kvöld undir stjórn Björns Braga Arnarssonar. Eins og í fyrri þáttaröðunum munu sextán lið mæta til leiks og keppa í útsláttarkeppni þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari.

Nú getum við loksins afhjúpað þau lið sem keppa í fimmtu þáttaröð af Kviss. Keppendurna má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.

Í fyrsta þætti mætast Valur og Ösp. Fyrir hönd Vals keppa Bergur Ebbi Benediktsson uppistandari og Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona, í liði Aspar eru grínistarnir Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson.

Klippa: Þetta eru liðin sem keppa í fjórðu þáttaröð KVISS

Liðin 16 sem keppa í þáttaröðinni:

  • Þróttur - Vigdís Hafliðadóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson
  • Fjarðabyggð - Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Helgi Seljan 
  • KA Patrekur Jamie og Binni Glee 
  • Leiknir Ásdís María Viðarsdóttir og Magnea Björg Jónsdóttir
  • KR - Gísli Marteinn Baldursson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir
  • Fram - Sandra Barilli og Rúnar Freyr Gíslason
  • Grótta - Egill Ploder Ottósson og Arnar Þór Ólafsson
  • Valur - Bergur Ebbi Benediktsson og Kristín Þóra Haraldsdóttir
  • Fylkir - Albert Ingason og Hjálmar Örn Jóhannesson
  • Selfoss - Gunnar Ólason og Einar Bárðason
  • Stjarnan - Rakel María Hjaltadóttir og Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir 
  • Njarðvík - Sverrir Bergmann og Ína María Einarsdóttir
  • Keflavík - Valdimar Guðmundsson og Sólborg Guðbrandsdóttir
  • Sindri - Guðmundur Birkir Pálmason og Lína Birgitta Sigurðardóttir 
  • Víkingur - Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Fannar Sveinsson
  • Ösp - Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson

Kviss er stórskemmtilegur spurningaþáttur þar sem þekktir Íslendingar keppa fyrir hönd íþróttafélaganna sem þeir styðja. Þótt liðin skiptist eftir íþróttafélögum er ekki um íþróttaþátt að ræða, heldur eru spurningar úr öllum áttum.

Keppendur eru ekki íþróttafólk heldur nægir að þeir hafi alist upp í hverfi íþróttafélagsins eða hafi æft íþróttir með félaginu á yngri árum. Liðin sem vinna sínar viðureignir halda áfram leik þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari og verður krýnt Íslandsmeistari í Kviss.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×