Innlent

Stal verð­mætum fyrir 6,3 milljónir á tveimur árum

Jón Þór Stefánsson skrifar
Verðmætasta þýfið var eftir þjófnað í verslun í Hafnartorgi í Reykjavíkþegar maðurinn stal ótilgreindum vörum fyrir 560 þúsund krónur ásamt öðrum einstaklingi.
Verðmætasta þýfið var eftir þjófnað í verslun í Hafnartorgi í Reykjavíkþegar maðurinn stal ótilgreindum vörum fyrir 560 þúsund krónur ásamt öðrum einstaklingi. Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna fjölda brota, en flest þeirra vörðuðu þjófnað. Brotin sem málið varðar náðu frá 14. mars síðasta árs til 15. mars þessa árs, en andvirði þýfis mannsins voru rúmlega 4,5 milljónir króna.

Ákæruliðirnir í málinu voru 31 talsins en þar af vörðuðu 27 þjófnað og einn tilraun til þjófnaðar. Hann var einnig ákærður fyrir umferðarlagabrot og hilmingu.

Verðmætasta þýfið var eftir þjófnað í verslun í Hafnartorgi í Reykjavík þegar maðurinn stal ótilgreindum vörum fyrir 560 þúsund krónur ásamt öðrum einstaklingi. Það næst verðmætasta var eftir þjófnað í verslun við Laugaveg þegar hann stal ótilgreindum vörum að andvirði 391 þúsund ásamt öðrum einstaklingi.

Maðurinn var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar í verslun í Faxafeni. En í ákæru segir að hann hafi reynt að stela þaðan reiðhjóli hvers verðmæti var 870 þúsund krónur, en honum hafi ekki tekist að brjóta upp hurð verslunarinnar og því farið á brott án reiðhjólsins.

Tuttugu skaðabótakröfur voru gerðar í málinu en dómari vísaði átta þeirra frá dómi þar sem að þær voru ekki lagðar fram af forsvarsmönnum fyrirtækisins.

Líkt og áður segir hlaut maðurinn átta mánaða fangelsisdóm, en hann játaði sök.

Sami maður hlaut sjö mánaða fangelsisdóm í janúar fyrr á þessu ári, en þá var hann ákærður fyrir tólf þjófnaðarbrot framin árin 2022 og 2023. Andvirði þýfisins í því máli hljóðaði upp á tæplega 1,8 milljónir króna. Á tímabili sem náði yfir tæplega tvö ár stal maðurinn verðmætum hvers verðmæti hljóðuðu upp á 6,3 milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×